Hallbera leggur skóna á hilluna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna alfarið á hilluna. Þetta tilkynnti hún á Instagram síðu sinni en Hallbera er 35 ára gömul og var að spila á sínu þriðja stórmóti með landsliði Íslands á EM. Hallbera er fædd og uppalin á Akranesi og hóf feril sinn með ÍA áður en hún gekk til liðs við Val árið 2005. Hún spilaði 341 leik í deild og bikar með ÍA, Val og Breiðabliki og skoraði alls 73 mörk. Hallbera vann sjö Íslandsmeistaratitla á ferlinum, þar af sex með Val og einn með Breiðabliki. Þá vann hún fjórum sinnum bikarinn með Val og einu sinni með Blikum. Hallbera lék á ferlinum einnig með Kalmar, Piteå, Djurgården og AIK í Svíþjóð ásamt einu tímabili með ítalska félaginu Torres. „Einhvern tímann þarf allt að taka enda en leikurinn í kvöld var minn síðasti á ferlinum. Frá mínum dýpstu hjartarótum Takk fyrir mig,“ skrifaði Hallbera á Instagram.",
  "innerBlocks": []
}
Hallbera leggur skóna á hilluna - Skessuhorn