{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gær var Þjóðahátíð Vesturlands haldin á veitingastaðnum Nítjándu í Garðavöllum á Akranesi. Hátíðin hefur verið haldin reglulega, með covidhléi, undanfarin 16 ár. Markmiðið með hátíðinni er að sýna fjölbreytileika ólíkra þjóða og draga úr kynþáttafordómum með því að kynna fyrir Íslendingum mismunandi menningu með tónlist, mat og dansi.\r\n\r\nHátíðin var sem fyrr haldin af Félagi nýrra Íslendinga en Pauline McCarthy á Akranesi hefur setið í formannssæti félagsins undanfarin 24 ár og skipulagt hátíðina frá upphafi. Þetta var síðasta hátíðin undir hennar stjórn en Malini Elavazhagan tekur nú við formennsku í félaginu. Ágætlega var mætt á hátíðina og fín stemning eins og sést á meðfylgjandi myndum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54962,54963,54964,54965\"]",
"innerBlocks": []
}