Reykholtshátíð haldin um næstu helgi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Reykholtshátíð er ein elsta og virtasta tónlistarhátíð landsins og er haldin í júlí á hverju ári í Reykholti í Borgarfirði. Reykholtshátíð var stofnuð árið 1997 og telst því til elstu tónlistarhátíða landsins. Hátíðin í ár fer fram um næstu helgi, hefst föstudaginn 22. júlí og lýkur sunnudaginn 24. júlí.\r\n\r\nErlendu gestir hátíðarinnar að þessu sinni verða víóluleikarinn Rita Porfiris og fiðluleikarinn Anton Miller en saman skipa þau Miller-Porfiris Duo. Þau eru miklir aufúsugestir og Íslandsvinir og eiga stórglæsilegan feril að baki bæði sem einleikarar og kammermúsíkantar. Farfuglarnir í ár eru fiðluleikarinn Ari Þór Vilhjálmsson og barintónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson. Ari er búsettur í Tel Aviv þar sem hann starfar með Fílharmóníusveitinni í Ísrael og Oddur er búsettur í Salzburg. Báðir eru þeir tónleikagestum Reykholtshátíðar að góðu kunnir og mikil tilhlökkun að fá þá til liðs við hópinn. Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari mun leika bæði kammertónlist og með Oddi Arnþóri á hátíðinni. Nína Margrét er flestum kunn bæði sem píanóleikari og kennari og hún hefur um árabil átt í farsælu samstarfi við marga flytjendur hátíðarinnar í ár.\r\n\r\nSellóleikarinn Sigurgeir Agnarsson og flautuleikarinn Berglind Stefánsdóttir eru tónleikagestum Reykholtshátíðar heldur betur að góðu kunn en Sigurgeir Agnarsson var listrænn stjórnandi hátíðarinnar í átta ár. Þau snúa nú aftur til að spila í kirkjunni góðu og má búast við að þar verði fagnaðarfundir. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar, víóluleikarinn Þórunn Ósk Marinósdóttir og sellóleikarinn Sigurður Bjarki Gunnarsson leika að sjálfsögðu líka með öllu þessu góða fólki. Á efnisskránni verða verk eftir Mozart, Karólínu Eiríksdóttur, Schumann, Errolynn Wallen, Weber, Malnborg Ward, Dvorak, Jón Leifs, Strauss, Jórunni Viðar, Rossini, Huga Guðmundsson, Atla Heimi Sveinsson og Beethoven.\r\n\r\nÁ opnunartónleikum Reykholtshátíðar munu Oddur Arnþór Jónsson og Nína Margrét Grímsdóttir flytja hinn gullfallega ljóðaflokk Roberts Schumann, Dichterliebe sem samanstendur af 16 lögum við ljóð Heinrichs Heine. Oddur Arnþór hefur aldrei flutt ljóðaflokkinn í heild sinni fyrir íslenska áheyrendur og því mikil tilhlökkun að heyra þennan flutning. Allir flytjendur Reykholtshátíðarinnar í ár koma fram á þessum tónleikum.\r\n\r\nNánari upplýsingar um alla flytjendur og dagskránna má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar reykholtshatid.is og miðasala er á tix.is",
  "innerBlocks": []
}
Reykholtshátíð haldin um næstu helgi - Skessuhorn