Fréttir

true

Jarðgangagjaldi ætlað að fjármagna stærri samgönguverkefni

Fyrirhugað er að hefja gjaldtöku í öllum jarðgöngum hér á landi á næsta eða þarnæsta ári. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í vikunni, en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur boðað frumvarp um málið í haust. Gjaldtakan á að standa undir framtíðar jarðgangagerð í landinu. Í því sambandi bendir ráðherrann á að Fjarðarheiðargöng…Lesa meira

true

Pílagrímar ganga í Borgarfirði

Þær Anna Eiríksdóttir, sóknarprestur Stafholtsprestakalls, og Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur og fyrrverandi sóknarprestur í Stafholti, standa í sumar fyrir Pílagrímagöngu milli kirknanna í sókninni. Mánudaginn 6. júní var gengið frá Hvammskirkju í Norðurárdal, yfir Grjótháls og að Norðtungukirkju en leiðin er um ellefu km. Í gær, miðvikudaginn 13. júlí hélt hópurinn svo frá Norðtungukirkju, gekk með…Lesa meira

true

Sprengihætta af Sóló sumarbjór

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Sóló sumarbjór frá Íslenskri hollustu vegna þess að bjórdósir geta bólgnað og sprungið. Fyrirtækið Og natura/Íslensk hollusta hefur innkallað bjórinn í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness (HEF). Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Og natura Vöruheiti: Sóló Sumarbjór Best fyrir dagsetning/Lotunúmer: 22.okt 2022 /…Lesa meira

true

Vilja flýta leitum og réttum

Nokkrar fjallskilanefndir í Borgarbyggð hafa óskað eftir heimild til að flýta göngum og réttum í haust um eina viku og víkja þannig frá gildandi fjallskilareglugerð. Þetta er gert m.a. þar sem gróður var snemma á ferðinni í vor og sölnar því fyrr þegar líður á sumar. Þá greiða afurðastöðvar að jafnaði hæsta verðið fyrir dilkakjöt…Lesa meira

true

Skemmdarverk í Einkunnum

Umsjónarnefnd Fólkvangsins Einkunna hittist í Einkunnum í byrjun júlí til að skipuleggja starfið fram undan. Ábending hafði borist um skemmdarverk í fræðslurjóðri. Nefndin gekk um fólkvanginn og skoðaði aðstæður. Teknar voru myndir og lagfært í kringum eldstæðið. Búið var að brenna trjáboli, greinar og hluta af girðingu og dreifa um svæðið. Ákveðið var að forgangsraða…Lesa meira

true

Vestfjarðavíkingurinn fór víða að þessu sinni

Fjórir kappar tókust hart á um sigur í Vestfjarðavíkingnum 2022. Þessi rótgrónasta aflraunakeppni landsins var haldin dagana 1. til 3. júlí síðastliðinn, þrítugasta árið í röð. Afmælisvíkingurinn hófst á Patreksfirði á föstudeginum og síðan barst leikurinn seinna dags til Reykhóla. Á laugardegi var tekist á suður um í Búðardal og á Hellissandi og lauk keppni…Lesa meira

true

Áhugamannamót Íslands í hestaíþróttum fer fram á Akranesi

Áhugamannamót í hestaíþróttum mun fara fram næstu helgi, 15.-17. júlí á félagssvæði Dreyra að Æðarodda á Akranesi. Mótið er fyrir þá knapa sem eru 22 ára og eldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum tveimur árum. Keppt verður í töltgreinum, fjórgangi, fimmgangi, gæðingaskeiði og flugskeiði. Skráningarfrestur á mótið rennur út í kvöld, á…Lesa meira

true

Römpum upp Ísland á Akranesi

Starfsmenn verkefnisins Römpum upp Ísland, hófust handa í morgun á Akranesi með uppsetningu ramps við veitingastaðinn Gamla Kaupfélagið. Búið er að finna um það bil 20 römpum stað á Akranesi við byggingar sem hýsa alls kyns starfsemi og aðkallandi er að bæta aðgengi að. Á morgun, fimmtudaginn 14. júlí er stefnt að vígslu 70. rampsins…Lesa meira

true

Segja lúpínunni stríð á hendur

Lúpínan hefur breitt úr sér á síðustu árum og skartar nú litum sínum um Vesturland. Skiptar skoðanir eru um hvort plantan sé vinur eða óvinur í náttúrunni. Lúpínan er almennt flokkuð sem illgresi þar sem hún sáir sér óumbeðin, dreifir sér hratt og yfirgnæfir jafnvel annan gróður. Plantan getur þó gert gagn á undirlendi sem…Lesa meira

true

21 verkefni hlýtur styrk úr Lóu – Breið þróunarfélag með tvo styrki

Úthlutanir úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina hafa nú verið tilkynntar og hljóta 21 verkefni styrk í ár. Verkefnin eru fjölbreytt og eru meðal annars á sviði nýsköpunar í matvælavinnslu, uppbyggingu í vistkerfi nýsköpunar og STEAM greina og rannsókna á sviði sjávarfallavirkjana. Þá sýndu umsóknir um styrkina að um land allt er mikill áhugi hvað…Lesa meira