Guðrún Jónsdóttir reytir lúpínu í Borgarnesi. Sjá má viðtal við Guðrúnu í nýjasta blaði Skessuhorns. Ljósm. sþ

Segja lúpínunni stríð á hendur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lúpínan hefur breitt úr sér á síðustu árum og skartar nú litum sínum um Vesturland. Skiptar skoðanir eru um hvort plantan sé vinur eða óvinur í náttúrunni. Lúpínan er almennt flokkuð sem illgresi þar sem hún sáir sér óumbeðin, dreifir sér hratt og yfirgnæfir jafnvel annan gróður. Plantan getur þó gert gagn á undirlendi sem einkennist af melum og litlum gróðri og tekur þátt í að græða upp gróðurvana jarðveg. Í blóma er hún yfirleitt fallega fjólublá að lit og bætir litadýrð íslenska sumarsins en margir halda upp á fjólubláu breiðurnar. Upp á síðkastið hefur fólk hér og þar sagt lúpínunni stríð á hendur þar sem plantan er ekki velkomin og margir nota nú tímann áður en hún kastar fræum sínum til að reyta hana niður og verja sitt nærumhverfi frekari lúpínufaraldri.\r\n\r\n<em>Sjá nánari umfjöllun í nýjasta blaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Segja lúpínunni stríð á hendur - Skessuhorn