Skemmdarverk í Einkunnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Umsjónarnefnd Fólkvangsins Einkunna hittist í Einkunnum í byrjun júlí til að skipuleggja starfið fram undan. Ábending hafði borist um skemmdarverk í fræðslurjóðri. Nefndin gekk um fólkvanginn og skoðaði aðstæður. Teknar voru myndir og lagfært í kringum eldstæðið. Búið var að brenna trjáboli, greinar og hluta af girðingu og dreifa um svæðið. Ákveðið var að forgangsraða hvað varðar skipulag stíga, æskilegt þykir að gera stíga í hring sem nær utan um allt svæðið og merkja betur minni hringi og loka á óljósar leiðir á nokkrum stöðum. Gera þarf stígakerfið skilmerkilegra, breyta litamerkingum og forgangsraða aðgerðum. Nefndin ákvað að vinna fjögurra ára áætlun um aðgerðir og huga að möguleikum á að afla styrkja til uppbyggingar í fólkvanginum.",
  "innerBlocks": []
}
Skemmdarverk í Einkunnum - Skessuhorn