Fréttir

true

Kíkt við í Bjarnarhöfn

Ýmsir hleyptu brúnum í forundran þegar hjónin Hildibrandur Bjarnason og Hrefna Garðarsdóttir í Bjarnarhöfn hófust handa, árið 2003, við að byggja 200 fermetra hús fyrir ferðamenn þar sem þeir gætu fræðst um hákarlaverkun og fengið að smakka. Það hefur þó sýnt sig að vera skynsöm ákvörðun og nú er húsnæðið orðið of lítið, slík er…Lesa meira

true

„Tímarnir hafa verið svo fljótir að breytast“

Fyrir nokkru birti Ragnhildur Helga Jónsdóttir á bænum Ausu í Andakíl myndir á Facebook síðu sinni af Auði móður hennar í heyskap. Þetta eru sólríkar myndir og fallegar, en ekki síst merkilegar fyrir þær sakir að móðir hennar er að verða níutíu og tveggja ára en tekur enn dyggan þátt í búskapnum. Blaðakona Skessuhorns fékk…Lesa meira

true

Tjörn og fuglaskógur í Grenigerði

Það kemur fyrir að maður kemur á stað sem virðist ekki vera alveg af þessum heimi. Þannig leið blaðakonu Skessuhorns þegar hún beygði til vinstri af þjóðvegi nr. 1 rétt austan við hesthúsahverfið í Borgarnesi í síðustu viku. Í kyrrðinni blasti við rauður malarvegur og meðfram honum blómstrandi sírenur. Ilmur frá þeim fyllti loftið og…Lesa meira

true

Kolfinna ráðin skólameistari Kvennaskólans

Kolfinna Jóhannesdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík frá 1. ágúst nk. Kolfinna starfaði sem sviðsstjóri greiningarsviðs Menntamálastofnunar 2018–2022 og sérfræðingur á sviði framhaldsskólamála og teymisstjóri framhaldsskóla- og velferðarmála hjá stofnuninni 2016–2018. Hún var skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar 2011–2014 þegar hún tók við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar sem hún gegndi til ársins 2016. Kolfinna…Lesa meira

true

Stefnir í stærsta ferðasumarið á Vesturlandi

Ferðaþjónustan hefur farið í gegnum stórfelldar þrengingar á tímum Covid-faraldursins. Nú er hins vegar að létta til í greininni og býsna mikið af ferðafólki um allt land. Skessuhorn sló á þráðinn til nokkurra ferðaþjónustuaðila og forvitnaðist um gang mála í sumar, en nú er fyrsta sumarið síðan 2019 þar sem erlendir sem innlendir ferðamenn geta…Lesa meira

true

Þrot forsýnd í Rifi á laugardaginn

Kvikmyndin Þrot verður forsýnd í Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi laugardaginn 16. júlí kl. 20. Formleg frumsýning á Íslandi fer fram í Reykjavík 20. júlí en kvikmyndaframleiðendur ferðast nú um Ísland og forsýna myndina á nokkrum stöðum. Þrot er sakamáladrama en kvikmyndin hefur nú þegar hlotið titilinn Besta erlenda myndin á San Diego Movie Awards…Lesa meira

true

Um 400 ungmenni mættu á Landsmót Landsbjargar

Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru haldin annað hvert ár en alls eru 48 unglingadeildir starfandi um land allt. Björgunarsveitafólk framtíðarinnar stígur oftar en ekki sín fyrstu skref í unglingastarfi. Þar fá þau leiðsögn frá reyndu björgunarsveitafólki, öðlast færni og þekkingu á björgunarstörfum og læra að athafna sig í kraftmikilli náttúru landsins. Starfið eru fyrir alla…Lesa meira

true

Fyrirlestur í kvöld – Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína

Í kvöld kl. 20 flytur Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Arla Foods, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Snorri mun segja frá reynslu sinni af búsetu og störfum í fjarlægum…Lesa meira

true

Skallagrímur burstaði Reyni

Skallagrímur og Reynir Hellissandi mættust í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi á Skallagrímsvelli í Borgarnesi og unnu heimamenn stórsigur, 6-0. Það var fljótt ljóst hvert stefndi í leiknum því eftir aðeins sjö mínútur hafði Elís Dofri Gylfason skorað tvö mörk með tveggja mínútna millibili. Eftir tæplega hálftíma leik bætti Alexis Alexandrenne…Lesa meira