Palli og hundurinn Birta í útiverkum

Tjörn og fuglaskógur í Grenigerði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það kemur fyrir að maður kemur á stað sem virðist ekki vera alveg af þessum heimi. Þannig leið blaðakonu Skessuhorns þegar hún beygði til vinstri af þjóðvegi nr. 1 rétt austan við hesthúsahverfið í Borgarnesi í síðustu viku. Í kyrrðinni blasti við rauður malarvegur og meðfram honum blómstrandi sírenur. Ilmur frá þeim fyllti loftið og fuglasöngur ómaði í eyrum; ég var komin í Grenigerði.\r\n\r\nGrenigerði er gróðrarstöð á um fimm hektara svæði þar sem hjónin Páll Jensson (Palli) og Ríta Freyja Bach hafa ráðið ríkjum í rúm fjörutíu ár. Þau eru af dönsku bergi brotin en komu til Íslands fyrir um hálfri öld. Hann er 86 ára og hún tæplega áttræð. Samt eru þau í önnum, bæði við handverk og ekki síst við að hlúa að gróðrinum. Það var einmitt tilefni heimsóknarinnar að fræðast um hvernig maður breytir illa hirtum túnum í paradís.\r\n\r\n<em>Lesa má viðtal við Palla og Rítu í nýjasta blaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Tjörn og fuglaskógur í Grenigerði - Skessuhorn