
Kolfinna Jóhannesdóttir.
Kolfinna ráðin skólameistari Kvennaskólans
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kolfinna Jóhannesdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík frá 1. ágúst nk. Kolfinna starfaði sem sviðsstjóri greiningarsviðs Menntamálastofnunar 2018–2022 og sérfræðingur á sviði framhaldsskólamála og teymisstjóri framhaldsskóla- og velferðarmála hjá stofnuninni 2016–2018. Hún var skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar 2011–2014 þegar hún tók við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar sem hún gegndi til ársins 2016.\r\n\r\nKolfinna er með háskólapróf í rekstrarfræðum frá Samvinnuháskólanum á Bifröst, BS gráðu í viðskiptafræði og MA gráðu í hagnýtum hagvísindum frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hún er jafnframt með diplómu í kennslufræði frá Háskólanum í Reykjavík, diplómu í menntaforystu og stjórnun frá Háskólanum í Nottingham. Hún hefur stundað doktorsnám á sviði menntavísinda frá árinu 2016, fyrst við Háskólann í Nottingham og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.",
"innerBlocks": []
}