Auður. Ljósm. rhj

„Tímarnir hafa verið svo fljótir að breytast“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrir nokkru birti Ragnhildur Helga Jónsdóttir á bænum Ausu í Andakíl myndir á Facebook síðu sinni af Auði móður hennar í heyskap. Þetta eru sólríkar myndir og fallegar, en ekki síst merkilegar fyrir þær sakir að móðir hennar er að verða níutíu og tveggja ára en tekur enn dyggan þátt í búskapnum. Blaðakona Skessuhorns fékk að líta inn í Ausu í smá spjall við Auði af þessu tilefni.\r\n\r\nAuður Pétursdóttir er fædd á Gullberastöðum í Lundarreykjadal í júlí árið 1930, dóttir hjónanna Helgu Baldvinsdóttur og Péturs Vigfússonar sem síðar bjuggu í Hægindi í Reykholtsdal. Fjölskyldan átti heima á Gullberastöðum fyrstu sex árin í lífi Auðar og fyrsta æskuminningin er níutíu ára gömul. Hún er af atviki sem varð árið 1932 þegar hún var tveggja ára og pelinn hennar týndist á leiðinni til kirkju að Lundi. „Það fannst mér auðvitað óbætanlegur skaði,“ segir hún og brosir. „Svo var heldur ekki auðvelt að fá glerflöskur á þeim tíma.“\r\n\r\n<em>Lesa má viðtalið við Auði í heild sinni í nýjasta blaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Tímarnir hafa verið svo fljótir að breytast“ - Skessuhorn