
Brynja Brynjarsdóttir, eigandi Hraunsnefs Sveitahótels og Hraunsnefsskálans. Ljósm. sþ.
Stefnir í stærsta ferðasumarið á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ferðaþjónustan hefur farið í gegnum stórfelldar þrengingar á tímum Covid-faraldursins. Nú er hins vegar að létta til í greininni og býsna mikið af ferðafólki um allt land. Skessuhorn sló á þráðinn til nokkurra ferðaþjónustuaðila og forvitnaðist um gang mála í sumar, en nú er fyrsta sumarið síðan 2019 þar sem erlendir sem innlendir ferðamenn geta ferðast án takmarkana. Ferðaþjónustuaðilarnir eru í Borgarfirði, Dalabyggð og á Snæfellsnesi. Þeir segjast allir hafa nóg að gera og jafnvel meira en nokkurn tímann áður. Áberandi virðist vera að Íslendingar eru að ferðast meira innanlands núna en fyrir Covid og á sama tíma glíma öll fyrirtæki við starfsmannaeklu.\r\n\r\nSkessuhorn talaði m.a. við Brynju Brynjarsdóttur, eiganda Hraunsnefs sveitahótels og Hraunsnefsskálans, sem áður hét Hreðavatnsskáli, í Norðurárdal. Hún segist ekki áður hafa vitað annað eins ferðasumar og nú, en aldrei áður hefur verið eins mikið að gera. ,,Það hefur aldrei verið eins mikið bókað og núna, við höfum bara aldrei séð annað eins. En á sama tíma hefur aldrei verið eins erfitt að fá starfsfólk. Þannig þetta eru frekar flóknar aðstæður. Það er greinilegt að Íslendingar eru að ferðast meira núna en fyrir Covid en auðvitað er svolítið um erlenda ferðamenn líka. Júní var núna með svipaðar bókunartölur og júlí hefur verið með undanfarin ár en hótelið er fullbókað hjá okkur fram yfir miðjan ágúst og við höfum bara aldrei vitað annað eins,“ segir Brynja.\r\n\r\nEinnig talaði blaðamaður við Eszter Nagy sem rekur Fosshótel í Stykkishólmi og Guðmund Halldórsson, einn eiganda Vogs á Fellsströnd.\r\n\r\n<em>Sjá nánari umfjöllun í nýjasta blaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}