Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Gísli Gíslason á stofnfundi Nýsköpunarnets Vesturlands (NýVest) í apríl á þessu ári. Ljósm. vaks

21 verkefni hlýtur styrk úr Lóu – Breið þróunarfélag með tvo styrki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Úthlutanir úr Lóu - nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina hafa nú verið tilkynntar og hljóta 21 verkefni styrk í ár. Verkefnin eru fjölbreytt og eru meðal annars á sviði nýsköpunar í matvælavinnslu, uppbyggingu í vistkerfi nýsköpunar og STEAM greina og rannsókna á sviði sjávarfallavirkjana. Þá sýndu umsóknir um styrkina að um land allt er mikill áhugi hvað varðar nýtingu og sköpun verðmæta úr þörungum.\r\n\r\nFram kemur á vef Stjórnarráðs Íslands að alls bárust hundrað umsóknir um styrki í ár og samtals var tæpum 100 milljónum króna úthlutað til þeirra verkefna sem matshópur um veitingu Lóu nýsköpunarstyrkja taldi skara fram úr. Hlutverk Lóu er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæða á landsbyggðinni. Styrkirnir veita aukinn slagkraft inn í nýsköpunarverkefni og stuðla að auknu samstarfi um land allt.\r\n\r\n„Með nýsköpunarstyrk Lóu stuðlum við að frjórri jarðvegi fyrir nýjar hugmyndir og nýsköpun á landsbyggðinni. Verkefnin sem fá nú styrk koma af öllu landinu og eru virkilega fjölbreytt. Lóa eflir atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti á forsendum landssvæðanna sjálfra. slíkt mun leggja grunn að bjartari von og fjölbreyttari störfum fyrir þau sem vilja hafa aukið val um búsetu,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra nýsköpunar.\r\n\r\nLóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina fyrir árið 2022 voru auglýstir í vor og var umsóknarfrestur til 11. maí síðastliðinn. Matshópur fór yfir allar umsóknir og gerði í kjölfarið tillögur til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um veitingu styrkja.\r\n\r\nBreið þróunarfélag á Akranesi fékk tvo styrki frá Lóu. Algó ehf. fékk styrk upp á 2,5 milljónir fyrir verkefnið Særækt en það áformar uppskölun framleiðslu sæmetis, sjávargrænmetis sem til þessa hefur verið þróað út frá sjálfbærri nýtingu á villtri náttúruauðlind, með því að nýta einstakar aðstæður á Íslandi til ræktunar sjávarþörunga í blandaðri hringrásar-landrækt. Í þessu verkefni verða viðskiptalegar og tæknilegar forsendur grundvöllur arðbærrar særæktunar. Breið líftæknismiðja ehf. fékk styrk upp á 2,8 milljónir króna en í lýsingu á því verkefni segir: „Mikilvægt er að geta tekið grunnrannsóknir yfir á hagnýtingarstig. Líftæknismiðjunni er ætlað að brúa bil milli grunnrannsókna og hagnýtingar hugmynda með því að veita frumkvöðlum og fyrirtækjum aðstöðu til uppskölunarrannsókna og þróunarvinnu á framleiðsluferlum.\r\n\r\nÞörungamiðstöð Íslands sem er nýstofnað rannsókna- og þróunarsetur um stórþörunga á Reykhólum fékk styrk að upphæð 8,1 milljón en hæsta styrkinn að þessu sinni fékk Sjótækni ehf. á Tálknafirði, tólf og hálfa milljón. Nánar má sjá upplýsingar um styrkþega og verkefnin á síðunni stjornarradid.is.",
  "innerBlocks": []
}
21 verkefni hlýtur styrk úr Lóu – Breið þróunarfélag með tvo styrki - Skessuhorn