
Hið goðsagnakennda og árlega Ögurball verður haldið í Ögri við Ísafjarðardjúp laugardaginn 16. júlí nk. Aðgöngumiða fylgir tjaldstæði, aðgangur að sveitaballinu og heimagerður rabarbaragrautur með rjóma sem gott er að gæða sér á milli dansspora. Ögurhátíðin byrjar á föstudagskvöldi 15.júlí með barsvari „pubquiz,“ og fylgt eftir með brennu og brekkusöng. Á laugardagsmorgun verður söguganga um…Lesa meira








