
Strandveiðar á Breiðafirði. Ljósm. úr safni/af.
Strandveiðifélagið mótmælir harðlega væntanlegum breytingum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Strandveiðifélag Íslands mótmælir harðlega þeim áformum matvælaráðherra að snúa aftur til strandveiðikerfisins sem var við lýði fyrir breytingarnar 2018. „Við erum hársbreidd frá því að tryggja öllum handfærabátum 48 daga á vertíð og teljum að við þurfum að horfa fram á við - en ekki snúa til baka í meingallað kerfi,“ segir í tilkynningu frá félaginu. „Allar lausnir ættu að vera í fullu samráði við alla hagaðila en ekki einhliða ákvörðun ráðherra.“\r\n\r\nÞá segir að ráðherra hafi ekki náð að funda með Strandveiðifélaginu sökum anna en fulltrúar félagsins áttu fund með aðstoðarmanni ráðherra og tveimur sérfræðingum í ráðuneytinu í síðustu viku um núverandi vertíð, en útlit var fyrir að henni lyki í júlí. „Ráðherra hefur bætt 1.074 tonnum í kerfið en það dugar ekki út ágúst að okkar mati. Við teljum þurfa um 3000 tonn.“\r\n\r\n„Þetta er atvinnu-, afkomu- og fæðuöryggismál. Það eru um 600-700 heimili sem reiða sig á þessar veiðar. Því til viðbótar er starfsemi fiskmarkaða, kvótalaus fiskvinnsla, verslanir, iðnaðar og þjónustu sem fylgir þessum veiðum og eru afar dýrmæt fyrir sjávarbyggðir um allt land. Við þökkum ráðherra þó reglugerðarbreytingu sem leyfir strandveiðibátum að halda strax á aðrar veiðar þegar vertíðin er stöðvuð fyrir 31. ágúst. Það verða þá ekki allir bundnir við bryggju til 31. ágúst,“ segir í tilkynningu sem Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður Strandveiðifélags Íslands skrifar undir.",
"innerBlocks": []
}