Skipulagsstofnun staðfesti breytingar vegna vindorkuvera
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skipulagsstofnun staðfesti 29. júní síðastliðinn breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. júní 2022. Í breytingunni felst að um 419 ha landbúnaðarsvæði í landi Hróðnýjarstaða í Dölum hefur nú verið breytt í iðnaðarsvæði fyrir vindorkuver fyrir vinnslu allt að 130 MW. Einnig samþykkti stofnunin breytingu sem þýðir að 414 ha landbúnaðarsvæði í landi Sólheima í Laxárdal er breytt í iðnaðarsvæði fyrir vindorkuver fyrir vinnslu allt að 150 MW. Fyrr á árinu hafði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra synjað sveitarfélögum um staðfestingu á sambærilegum breytingum vegna þess að þær samræmdust ekki lögum um rammaáætlun, en með breyttri skilgreiningu á svæðinu virðist sú fyrirstaða hafa verið leyst. Bæði svæðin eru nú skilgreint sem varúðarsvæði sem felur í sér takmörkun á landnotkun.\r\n\r\nÁ fundi nýrrar sveitarstjórnar Dalabyggðar 16. júní síðastliðinn voru tekin fyrir tvö mál er bæði snertu breytingu á Aðalskipulagi, varðandi vindorkuver á Hróðnýjarstöðum og annað á Sólheimum. Í fundargerð sveitarstjórnar eru málavextir raktir. Þar kemur fram að Dalabyggð hafi óskað með erindi dags. 19. október 2021 skv. 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga staðfestingar Skipulagsstofnunar á breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna iðnaðarsvæðis í landi Hróðnýjarstaða og Sólheima fyrir vindorkuver. Skipulagsstofnun vísaði með bréfi dags. 28. desember 2021, staðfestingu breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar til ákvörðunar ráðherra sbr. 4. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun vísaði m.a. í skilmála skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 þar sem segir að svæði í biðflokki rammaáætlunar skuli skilgreind sem varúðarsvæði en skilgreining varúðarsvæðis felur m.a. í sér takmörkun á landnotkun. Þann 6. apríl 2022 barst ákvörðun ráðherra þar sem synjað er um staðfestingu á breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins varðandi vindorkuver á Hróðnýjarstöðum.\r\n\r\nÍ fundargerð sveitarstjórnar frá 16. júní segir: „Í kjölfar athugasemda Skipulagsstofnunar og ákvörðunar ráðherra hafa skipulagsgögn verið lagfærð með þeim hætti að fyrirhugað iðnaðarsvæði er nú skilgreint sem varúðarsvæði.“ Sveitarstjórn samþykkti samhljóða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða annars vegar og í landi Sólheima hins vegar og að breytingin tæki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123 /2010. Eins og fyrr segir hefur Skipulagsstofnun nú með ákvörðun sinni 29. júní staðfest breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar og jarðarhlutarnir sem um ræðir, samtals 833 hektarar, skilgreindir sem varúðarsvæði.",
"innerBlocks": []
}