Misjafnar skoðanir í könnun um færslu hringvegar um Borgarnes

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í maí og júní á þessu ári lagði Samgöngufélagið, í samstarfi við Envalis, fyrir viðamikla vefkönnun þar sem spurt var um afstöðu fólks til mögulegrar færslu hringvegarins við Borgarnes. Tilgangur Samgöngufélagsins er að stuðla að sem mestum framförum í samgöngum á og við Ísland. Í tilkynningu frá félaginu segir að tilgangur könnunarinnar hafi verið tvíþættur. Annars vegar að auðvelda hinum almenna borgara að taka upplýsta afstöðu til færslu Hringvegar um Borgarnes miðað við þá legu sem sýnd er í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Hins vegar að afla upplýsinga um afstöðu hins almenna borgara til hugmyndarinnar um færslu Hringvegar um Borgarnes og hvernig hann sér fyrir sér að slík færsla yrði útfærð. Könnunin var öllum opin og gat hver sem er dreift henni og hvatt til þátttöku og voru 995 sem tóku þátt.\r\n\r\nHelstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að þátttakendur voru fremur hlynntir færslu Hringvegar um Borgarnes. Þátttakendur voru fremur hlynntir þeirri tillögu að legu Hringvegar um Borgarnes sem birt var í könnuninni og er í samræmi við núgildandi aðalskipulag. Karlar voru hlynntari færslu Hringvegar um Borgarnes en konur. Það sama gilti um framlagða tillögu. Yngsti aldurshópurinn (18 - 25 ára) var andvígari færslu Hringvegar um Borgarnes en aðrir aldurshópar. Af eftirfarandi hópum; íbúum í Borgarnesi, íbúum í Borgarbyggð utan Borgarness og íbúum utan Borgarbyggðar, voru íbúar í Borgarnesi andvígastir færslu Hringvegar um Borgarnes en íbúar utan Borgarbyggðar voru hlynntastir. Sama gilti um framlagða tillögu.\r\n\r\n<em><strong>Sjá má könnun Samgöngufélagsins og úrvinnslugögn hér:</strong></em>\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"20220613 ENVALYS - Borgarbyggð - Borgarnes - færsla Hringvegar_v1\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/20220613-ENVALYS-Borgarbyggd-Borgarnes-faersla-Hringvegar_v1-1.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-54770\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-54771\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/20220613-ENVALYS-Borgarbyggd-Borgarnes-faersla-Hringvegar_v1-1-pdf-600x338.jpg\" alt=\"thumbnail of 20220613 ENVALYS – Borgarbyggð – Borgarnes – færsla Hringvegar_v1\" width=\"300\" height=\"169\" /></a>",
  "innerBlocks": []
}
Misjafnar skoðanir í könnun um færslu hringvegar um Borgarnes - Skessuhorn