Glatt á hjalla á Ögurballi. Ljósm. Bæjarins besta.

Ögurball, skata og rabararbaragrautur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hið goðsagnakennda og árlega Ögurball verður haldið í Ögri við Ísafjarðardjúp laugardaginn 16. júlí nk. Aðgöngumiða fylgir tjaldstæði, aðgangur að sveitaballinu og heimagerður rabarbaragrautur með rjóma sem gott er að gæða sér á milli dansspora.\r\n\r\nÖgurhátíðin byrjar á föstudagskvöldi 15.júlí með barsvari „pubquiz,“ og fylgt eftir með brennu og brekkusöng. Á laugardagsmorgun verður söguganga um svæðið sem endar með messu í Ögurkirkju. Í hádeginu verður skötuveisla fyrir áhugasama. Ögurballið sjálft fer svo fram um kvöldið þar sem Stuðbandið Halli og Þórunn spila fyrir dansi en þau eru að sigla inn í sitt 23. ár á sviðinu í samkomuhúsinu. Ögurball hefur verið haldið síðan Ungmennafélagshúsið var byggt í Ögri 1926, ballið datt niður um hríð en hefur verið haldið ár hvert af Ögursystkinunum síðan 1999 og nú er næsta kynslóð að taka við. Rukkað er inn í hliðinu á Ögri og óþarfi að panta fyrirfram, nóg af tjaldstæðum og tilvalið að skella sér í sund í Reykjanesi til að þrífa af sér ferðarykið.\r\n\r\nThelma Rut Hafliðadóttir, ein af skipuleggjendum ballsins segir; „Þegar ballið var fyrst að komast á laggirnar þá var langt að fara á ball, fólk var að koma allstaðar að úr djúpinu og fór fólk ýmist á hestum, gangandi eða sjóleiðina. Þá var tekið upp á því að bjóða upp á rabarbaragraut með rjóma svo fólk kæmist heim án vandræða. Við höldum í hefðina og grautinn geri ég með uppskrift ömmu minnar Maju í Ögri, rjómann fáum við frá Erpsstöðum í Dölum. Þetta er svo ótrúlega skemmtilegt, stórfjölskyldan skipuleggur sumarfríið út frá þessari helgi. Vinir og vandamenn eru farnir að gera það sama og það er svo frábært að sjá sama fólkið ár eftir ár sem maður myndi líklega ekki annars hitta. Þessi helgi er alveg ótrúlega dýrmæt fyrir okkur, fullorðna fólkið og börnin, hún þjappar fjölskyldunni vel saman.“\r\n\r\nÖgurballið er einn vinsælasti viðburður sumarsins á Vestfjörðum, myllumerki ballsins er #ogurball og má finna á facebook og instagram. Hægt er að panta í skötuna í s: 857-1840 eða á facebook síðu Ögur Travel.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Ögurball, skata og rabararbaragrautur - Skessuhorn