Byrjunarlið Kára í leiknum. Ljósm. Kári á FB.

Baráttustig Káramanna í Garðinum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Káramenn sýndu mikinn karakter eftir að þeir lentu tveimur mörkum undir eftir aðeins níu mínútna leik gegn Víðismönnum á Nesfisksvellinum í Garði á laugardaginn. Þeir náðu að jafna leikinn og ná í mikilvægt stig gegn efsta liði 3. deildarinnar.\r\n\r\nÞað var Jóhann Árni Arnarson sem kom heimamönnum í Víði yfir strax á 7. mínútu leiksins og tveimur mínútum síðar skoraði Jóhann Árni aftur og nú annað mark Víðis, úr vítaspyrnu. Axel Freyr Ívarsson minnkaði muninn fyrir Káramenn á 36. mínútu og staðan 2:1 í hálfleik, en á 74. mínútu náði Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson að jafna leikinn í 2:2. Lokamínútur leiksins voru svo dramatískar því á 89. mínútu fengu Víðismenn vítaspyrnu en vítabaninn Dino Hodzic gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna. Káramenn geystust síðan í sókn og fengu gott marktækifæri til að taka öll stigin þrjú en markvörður Víðis náði að verja glæisilega og bjarga stigi fyrir heimamenn.\r\n\r\nKáramenn eru nú í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig en næsti leikur þeirra er gegn KFS á Týsvelli í Vestmannaeyjum laugardaginn 16. júlí nk. kl. 14:00.",
  "innerBlocks": []
}
Baráttustig Káramanna í Garðinum - Skessuhorn