Fréttir

true

Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur!

Sjómannadagurinn er í dag, sunnudaginn 12. júní. Víðs vegar í sjávarbyggðum landsins eru hátíðarhöld í gangi, sem ýmist standa yfir í nokkra daga, en víðast hvar ná hámarki í dag. Þannig er hátíðardagskrá á Akranesi, í Stykkishólmi, Snæfellsbæ og Grundarfirði. Dagurinn er hátíðisdagur sjómönnum til heiðurs og hefur verið haldið upp á hann á landsvísu…Lesa meira

true

Kári með góðan sigur á KFG

Kári tók á móti liði KFG í 3. deild karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í gær og eftir að hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum í deildinni vann liðið loksins sigur. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik en þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik kom Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson Kára yfir í leiknum. Finnbogi…Lesa meira

true

Afmælisdagur sem ekki gleymist

Fyrsta júní síðastliðinn átti Baldvin Smárason bóndi á Bakka í Reykhólahreppi fertugsafmæli. Vitandi að allt er fertugum fært ákvað hann að verja deginum í að plægja spildu innar í dalnum, töluverðan spöl frá bænum. Það byrjaði nú ekki sérlega vel því þegar hann var að fara til að dæla olíu á traktorinn kom hann auga…Lesa meira

true

Íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar lokaðar mánudaginn 13. júní

Borgarbyggð gaf út tilkynningu í morgun þess efnis að Íþróttamiðstöðvar sveitafélagsins verða lokaðar mánudaginn næsta, 13. júní. Ástæða lokunarinnar er námskeiðshald hjá starfsfólki. Íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar eru sundlaugar og íþróttamiðstöðvar í Borgarnesi, á Varmalandi og á Kleppjárnsreykjum. Sveitarfélagið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.Lesa meira

true

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á Akranesi

Síðasta þriðjudag var fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á Akranesi haldinn fyrir kjörtímabilið 2022-2026 þar sem kosið var í ráð og nefndir á vegum bæjarins næstu fjögur árin. Allar tillögur sem lagðar voru fram á fundinum voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum en níu manns skipa bæjarstjórn Akraness. Valgarður Lyngdal Jónsson (S) verður forseti bæjarstjórnar, Einar…Lesa meira

true

Sauðafellshlaupið verður annan sunnudag

Sauðafellshlaupið í Dölum verður hlaupið sunnudaginn 19. júní, en það fer nú fram í níunda skipti. „Árið 2014 fór fyrsta hlaupið fram, þá voru þátttakendur 40 og hefur fjöldi þeirra verið á rólinu 20-40 eftir það,“ segir Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum. „Það var góður vinur okkar, Haraldur Reynisson, þekktur sem Halli Reynis, sem hvatti…Lesa meira

true

Göngustígur kominn í gott lag

Um miðjan mars sagði Skessuhorn frá göngustíg fyrir aftan skógræktina á Akranesi sem lagt var á síðasta haust burðarlag til að styrkja veginn á um þrjú hundruð metra kafla. Efnið var möl í bland við stóra hvassa steina og því frekar erfitt fyrir gangandi vegfarendur, hlaupara og hjólreiðamenn að ferðast þarna um. Þessi leið hefur…Lesa meira

true

Námskeið fyrir eldri borgara

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir verður með fjögurra tíma námskeið í floti, slökun og léttum teygjum í Bjarnalaug á Akranesi. Námskeiðið er fyrir eldri borgara og fólk með örorku sem ekki hefur haft tök á því að stunda almenna hreyfingu og heilsueflingu. Öll kyn eru velkomin. Námskeið 1 er frá klukkan 10 til 11 dagana 14., 16.,…Lesa meira

true

Alexander Örn með þrjú Íslandsmet á HM

Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason gerði góða hluti á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í gær en mótið fer fram í borginni Sun City í Suður Afríku þessa dagana. Alexander Örn var að keppa á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í opnum flokki og átti frábæran dag. Hann lyfti 272,5 kílóum í hnébeygju, 190 kg í bekkpressu og 300…Lesa meira

true

Heiðrún Helga verður næsti sóknarprestur á Borg

Valnefnd í Borgarprestakalli hefur komist að þeirri niðurstöðu að ráða Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur mag. theol sem næsta sóknarprest á Borg á Mýrum. Alls sóttu fimm um starfið en einn dró umsókn sína til baka. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason hefur þjónað sókninni með stuttum hléum í fjörutíu ár, eða frá árinu 1982. Undir prestakallið heyra Borgarnessókn,…Lesa meira