Það var létt yfir bæjarstjórninni á sínum fyrsta fundi. Ljósm. Steinar Adolfsson

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðasta þriðjudag var fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á Akranesi haldinn fyrir kjörtímabilið 2022-2026 þar sem kosið var í ráð og nefndir á vegum bæjarins næstu fjögur árin. Allar tillögur sem lagðar voru fram á fundinum voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum en níu manns skipa bæjarstjórn Akraness.\r\n\r\nValgarður Lyngdal Jónsson (S) verður forseti bæjarstjórnar, Einar Brandsson (D) verður varaforseti og Ragnar B. Sæmundsson (B) verður annar varaforseti bæjarstjórnar. Aðalmenn í bæjarráði eru Líf Lárusdóttir (D) formaður bæjarráðs, Valgarður L. Jónsson varaformaður og Ragnar B. Sæmundsson.\r\n\r\nÍ skóla- og frístundaráði er Jónína Margrét Sigmundsdóttir (S) formaður, í Skipulags- og umhverfisráði er Guðm. Ingþór Guðjónsson (D) formaður og Kristinn Hallur Sveinsson (S) er formaður Velferðar- og mannréttindaráðs. Nánari skipan nefnda og ráða má finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar.",
  "innerBlocks": []
}
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á Akranesi - Skessuhorn