Sauðafell í Dölum. Ljósm. mm.

Sauðafellshlaupið verður annan sunnudag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sauðafellshlaupið í Dölum verður hlaupið sunnudaginn 19. júní, en það fer nú fram í níunda skipti. „Árið 2014 fór fyrsta hlaupið fram, þá voru þátttakendur 40 og hefur fjöldi þeirra verið á rólinu 20-40 eftir það,“ segir Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum. „Það var góður vinur okkar, Haraldur Reynisson, þekktur sem Halli Reynis, sem hvatti okkur til að gera þetta á sínum tíma og eftir fyrsta hlaupið, spilaði hann á gítarinn sinn í hlöðunni fyrir þátttakendur og gesti. Síðan höfum við haldið þetta hlaup og ávallt varið skráningargjaldinu til að styrkja félög á okkar heimasvæði, bæði litla klúbba og stærri félög. Í fyrra færðum við iðjunni á Fellsenda andvirðið,“ segir Þorgrímur.\r\n\r\n„Þátttaka hefur verið misjöfn milli ára, en við höfum á tilfinningunni að töluverður fjöldi muni mæta í þetta sinn og að ný met verði slegin, bæði hvað varðar fjölda þátttakenda í hlaupinu sjálfu og Sauðafellsgöngunni sem fer fram samhliða. Einstaka hlauparar munu svo líklega og vonandi bæta tímann sinn frá fyrri árum en ég er nokkuð viss um að brautarmetið sjálft verði ekki slegið. Það á Strandamaðurinn Birkir en það setti hann 2017 þegar hann hljóp á 58 mín. Besti tími árið 2018 var 58,20,“ Erpsstaðabóndinn.\r\n\r\n„Við vonum að sem flestir komi í Dalina, hlaupi með okkur og eigi góðan dag undir Dalanna sól. Hlaupið hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Hlaupið er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og upp veg 585, á Fellsendabrekkunni er stefnan tekin uppá Sauðafellið, það hlaupið þvert og niður að bænum Sauðafelli og komið að þjóðvegi 60 á ný og þá er hringnum lokað þegar komið er að Erpsstöðum á ný. Hlaupaleiðin er um 12 km. Þetta er skemmtileg leið, ekki mjög erfið þó helmingur hennar sé utanvegar eða eftir slóðum og útsýni er fallegt yfir sveitina og út Hvammsfjörðinn. Þeir sem vilja frekar hlaupa eftir vegi, geta tekið hringinn eftir þjóðvegunum 60 og 585, þá skiljast leiðir hlaupara við Fellsenda, sú leið er um 15 km. Boðið verður uppá barnagæslu á Erpsstöðum meðan á hlaupinu stendur, leikir og dýrin á bænum skoðuð. Skrá þarf í gæsluna með því að senda skilaboð í skjóðuna á Fésbókarsíðu Rjómabúsins.\r\n\r\nEftir hlaupið býður Rjómabúið Erpsstaðir upp á kaffi og rjómaís! Allir fá orkudrykk er þeir koma á endastöð. Það verður ein drykkjarstöð á leiðinni, við bæinn Fellsenda. Við óskum eftir að þið tilkynnið þátttöku á síðunni, það kostar 1000 krónur að taka þátt. Gott er að mæta tímanlega og ganga frá skráningu. Hlaupandi eða gangandi hver á sínum hraða. Yngsti þátttakandinn sem hefur tekið þátt er 9 ára og elsti 80 ára. Þetta er tímalaust hlaup og hver tekur tíma á sér ef hann vill. Fyrir þá sem vilja ganga þá er mæting á Erpsstaði og skutl þaðan að Fellsenda kl. 10:15 þar sem gangan hefst. Göngumenn fara um 8 km, stálpuð börn geta auðveldlega farið þetta í fylgd með forráðamönnum. Ath -göngumenn keyrðir frá Erpsstöðum að Fellsenda kl 10:15 - start hlaupara kl. 11.",
  "innerBlocks": []
}
Sauðafellshlaupið verður annan sunnudag - Skessuhorn