Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur!

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sjómannadagurinn er í dag, sunnudaginn 12. júní. Víðs vegar í sjávarbyggðum landsins eru hátíðarhöld í gangi, sem ýmist standa yfir í nokkra daga, en víðast hvar ná hámarki í dag. Þannig er hátíðardagskrá á Akranesi, í Stykkishólmi, Snæfellsbæ og Grundarfirði. Dagurinn er hátíðisdagur sjómönnum til heiðurs og hefur verið haldið upp á hann á landsvísu síðan 1987. Sjómannadagsráð stendur fyrir hátíðarhöldunum í flestum sjávarþorpum landsins og eflaust mikil spenna í loftinu þar sem bæjarfélög hafa ekki haft möguleika á að halda veglega upp á daginn undanfarin tvö ár. Nú hafa bæjarfélög og sjómannadagskráð birt ólíkar og spennandi dagskrár en ættu allir að geta fundið eitthvað spennandi til að gera í tilefni dagsins. Skessuhorn í liðinni viku var að mestu helgað sjómönnum og störfum þeirra.\r\n\r\nTil hamingju með daginn!",
  "innerBlocks": []
}
Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur! - Skessuhorn