Fréttir

true

Kynningarfundur um umhverfisvöktun á Grundartanga

Í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu á Grundartanga, hefur Umhverfisstofnun boðað til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga. Verður fundurinn þriðjudaginn 14. júní nk. Í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit og hefst kl. 16:00. Fundinum verður einnig streymt. Á dagskrá er kynning á niðurstöðum mengunareftirlits Umhverfisstofnunar og niðurstöður…Lesa meira

true

Íbúum fjölgaði í átta af tíu sveitarfélögum

Hagstofan hefur birt tölur um breytingu á íbúatölu í sveitarfélögum miðað við 1. júní síðastliðinn. Af tíu sveitarfélögum á Vesturlandi fjölgar íbúum í átta þeirra en fækkar í tveimur. Langmest hlutfallsleg fjölgun yfir landið var í Skorradalshreppi, eða um 18,3%. Ellefu bættust við í dalnum og er íbúafjöldinn nú 71. Íbúum fækkaði um 11 á…Lesa meira

true

Apabóla skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur

Heilbrigðisráðherra hefur með reglugerð skilgreint apabólu sem tilkynningarskyldan sjúkdóm. Grunur er um tvö tilfelli apabólu hér á landi en beðið er staðfestingar á þeirri greiningu. Sóttvarnalæknir hefur lagt til ákveðin viðbrögð af hálfu embættis síns og heilbrigðiskerfisins til að lágmarka útbreiðslu apabólu hér á landi. Áhersla er lögð á fræðslu og upplýsingagjöf og leiðbeiningar til…Lesa meira

true

Verslunin @home flutt í nýtt húsnæði

Á þriðjudaginn var verslunin @home á Akranesi opnuð á nýjum stað á Kirkjubraut 54-56. Verslunin var áður til húsa á Stillholti 16-18 og hafði verið þar frá stofnun fyrir tíu árum. Opnunarteiti var haldið á þriðjudeginum í tilefni flutningsins og kíktu fjölmargir viðskiptavinir í heimsókn. Verslunin er opin mánudaga til föstudags frá klukkan 11 til…Lesa meira

true

Ný sveitarstjórn hélt sinn fyrsta fund

Miðvikudaginn 8. júní kom ný bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar saman í fyrsta sinn. Bæjarstjórn skipa nú Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Steinunn I. Magnúsdóttir, Ragnar Ingi Sigurðsson, Þórhildur Eyþórsdóttir, Haukur Garðarsson, Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir og Ragnar Már Ragnarsson. Á vef sveitarfélagsins kemur fram að Hrafnhildur Hallvarðsdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar á fundinum, Ragnar I. Sigurðsson var…Lesa meira

true

Elkem Ísland gefur út umhverfisskýrslu fyrir 2021

Umhverfisskýrsla Elkem Ísland fyrir árið 2021 er komin út og er hún framsett á stafrænu formi í fyrsta skipti. Er það liður Elkem Ísland að auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um umhverfismál sérstaklega. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að skýrslan skiptist í sex mismunandi kafla þar sem gerð er grein fyrir stefnu Elkem…Lesa meira

true

Fjórir laxar úr Kjarará á fyrsta degi

,,Já, fyrstu laxarnir hafa veiðst í Kjarará en veiðin byrjaði í morgun, fjórir laxar á fyrsta degi,“ sagði Styrmir E. Ingólfsson þegar tíðindamaður Skessuhorns heyrði í honum á fjallinu í gærkvöldi. Veiðin er því komin á fleygiferð þar sem og í Þverá. Opnunarhollið í Þverá gaf tíu laxa. „Það var Örn Kjartansson sem veiddi fyrsta…Lesa meira

true

Opin hús hjá RARIK í tilefni af 75 ára afmæli

Miðvikudaginn 15. júní næstkomandi verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðs vegar um landið í tilefni af 75 ára afmæli fyrirtækisins. Starfsmenn RARIK munu taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað. Boðið verður upp á kaffi, afmælistertu og aðrar veitingar auk þess sem afmælisfáni RARIK verður dreginn að…Lesa meira

true

Fer úr sjómennsku í húsgagnasmíði

Hilmar Björnsson var nýkominn frá borði í byrjun maímánaðar þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á hann við Ólafsvíkurhöfn til að spjalla um sjómennskuna. „Vertíðin hefur verið góð. Það var reyndar hrikalegt veður í janúar og febrúar. Við náðum til dæmis ekki nema 18 róðrum í febrúar, allt hitt voru bræludagar,“ segir Hilmar um vertíðina en hann…Lesa meira

true

Skeljahátíð í Hólminum um helgina

Skeljahátíð fer fram í Stykkishólmi um næstu helgi, dagana 11. og 12. júní. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Í tilkynningu segir að á hátíðinni leiki matarkistan Breiðafjörður lykilhlutverk og vel sé við hæfi að halda slíka hátíð um sjómannadagshelgina, en sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 12. júní. Dagskrá…Lesa meira