Stuð og þrír gapandi við Kjarará í gær. Ljósm. aðsend.

Fjórir laxar úr Kjarará á fyrsta degi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": ",,Já, fyrstu laxarnir hafa veiðst í Kjarará en veiðin byrjaði í morgun, fjórir laxar á fyrsta degi,“ sagði Styrmir E. Ingólfsson þegar tíðindamaður Skessuhorns heyrði í honum á fjallinu í gærkvöldi. Veiðin er því komin á fleygiferð þar sem og í Þverá. Opnunarhollið í Þverá gaf tíu laxa.\r\n\r\n„Það var Örn Kjartansson sem veiddi fyrsta laxinn í Kjarará á veiðistaðnum Efra-Rauðabergi. Það var 92 sentimetra fiskur. Það veiddust tíu laxar í opnun Þverár, eiginlega mjög lífleg opnun þar,“ sagði Styrmir, en sjálfur var hann búinn að veiða sinn fyrsta lax í sumar í Kjarará. Andrés Eyjólfsson leiðsögumaður við Þverá sagði í samtali við blaðamann í gærkvöldi að töluvert væri af fiski í ánni og gott vatn. Smálaxinn væri mættur en það er óvenjulega snemmt.\r\n\r\nNú er stækkandi straumur og binda menn vonir við að það glæði veiðarnar enn frekar.",
  "innerBlocks": []
}
Fjórir laxar úr Kjarará á fyrsta degi - Skessuhorn