
Hvalfjörður. Ljósm. Jón Helgason
Kynningarfundur um umhverfisvöktun á Grundartanga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu á Grundartanga, hefur Umhverfisstofnun boðað til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga. Verður fundurinn þriðjudaginn 14. júní nk. Í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit og hefst kl. 16:00. Fundinum verður einnig streymt.\r\n\r\nÁ dagskrá er kynning á niðurstöðum mengunareftirlits Umhverfisstofnunar og niðurstöður eftirlits 2021, sem Margrét Helga Guðmundsdóttir flytur. Eva Yngvadóttir kynnir niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga 2021, Hermann Þórðarsson efnaverkfræðingur, Bríet Ósk Magnúsdóttir frá Norðuráli og Sigurjón Svavarsson frá Elkem flytja erindi. Eftir það verða umræður. Fundarstjóri verður Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis.",
"innerBlocks": []
}