
Bæjarstjórn sameiginlegs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar, að loknum fyrsta bæjarstjórnarfundi, ásamt Jakobi Björgvini Jakobssyni bæjarstjóra sem er efst til hægri á myndinni. Ljósm. stykkisholmur.is
Ný sveitarstjórn hélt sinn fyrsta fund
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Miðvikudaginn 8. júní kom ný bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar saman í fyrsta sinn. Bæjarstjórn skipa nú Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Steinunn I. Magnúsdóttir, Ragnar Ingi Sigurðsson, Þórhildur Eyþórsdóttir, Haukur Garðarsson, Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir og Ragnar Már Ragnarsson.\r\n\r\nÁ vef sveitarfélagsins kemur fram að Hrafnhildur Hallvarðsdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar á fundinum, Ragnar I. Sigurðsson var kjörinn fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og Haukur Garðarsson annar varaforseti. Kosnir voru fulltrúar í bæjarráð, skipulagsnefnd, skóla- og fræðslunefnd og fulltrúar sveitarfélagsins í Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Kjöri í aðrar nefndir var frestað til næsta fundar.\r\n\r\nLagðar voru fram hugmyndir að nafni sameinaðs sveitarfélags Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar sem bárust í samráðsgátt. Samþykkt var að vísa málinu til frekari vinnslu í bæjarráði. Bæjarráð kemur næst saman 23. júní næstkomandi.",
"innerBlocks": []
}