Sjóarinn Hilmar Björnsson.

Fer úr sjómennsku í húsgagnasmíði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hilmar Björnsson var nýkominn frá borði í byrjun maímánaðar þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á hann við Ólafsvíkurhöfn til að spjalla um sjómennskuna. „Vertíðin hefur verið góð. Það var reyndar hrikalegt veður í janúar og febrúar. Við náðum til dæmis ekki nema 18 róðrum í febrúar, allt hitt voru bræludagar,“ segir Hilmar um vertíðina en hann rær á Kristni SH sem er balalínubátur og hefur verið þar síðan í ársbyrjun. „Ég byrjaði í janúar á þessu ári og tek fimm mánuði sem eru að fara klárast núna í maí,“ bætir hann við.\r\n\r\n„Ég er búinn að vera sirka eitt og hálft ár á sjó allt í allt,“ segir Hilmar um ferilinn á sjónum sem er ekki langur enda engin furða þar sem Hilmar er einungis 22 ára gamall. „Afi minn var alla tíð á sjó alveg frá því hann var gutti. Hann sigldi frá Sauðárkróki svo líklega koma sjóaragenin mín þaðan. Ég flyt svo til Ólafsvíkur 2013 og hef verið hér að mestu síðan,“ bætir Hilmar við en hann fór ekki á sjó fyrst fyrr en fyrir hálfu öðru ári síðan, þá á Örvar SH 77. Þar áður hafði Hilmar unnið nokkra mánuði í Hraðfrystihúsi Hellissands við fiskvinnslu. „Á þeim tíma var ég á samningi hjá Víkingi Ólafsvík í fótbolta og hafði hugað að því að prófa sjómennskuna en hafði ekki tíma vegna boltans. Svo þegar ég hætti í boltanum hafði ég samband við Ragnar skipstjóra og hann ákvað að gefa mér séns. Ég tók eina vertíð þar og ætlaði síðan bara að hætta á sjó. Þá prófaði ég að flytja suður til Reykjavíkur eftir að ég hætti á sjó fyrir síðasta sumar. Þar var ég að vinna við afgreiðslustörf í Rekstrarlandi. Það gat ég ekki og entist bara í nokkrar mánuði áður en ég var kominn aftur hingað vestur,“ segir Hilmar og hlær. „Ég frétti þá af plássinu í Kristni SH og hafði strax samband við skipstjórann og komst inn,“ bætir hann við þakklátur.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Hilmar í Sjómannablaði Skessuhorns.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Fer úr sjómennsku í húsgagnasmíði - Skessuhorn