{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um miðjan mars sagði Skessuhorn frá göngustíg fyrir aftan skógræktina á Akranesi sem lagt var á síðasta haust burðarlag til að styrkja veginn á um þrjú hundruð metra kafla. Efnið var möl í bland við stóra hvassa steina og því frekar erfitt fyrir gangandi vegfarendur, hlaupara og hjólreiðamenn að ferðast þarna um.\r\n\r\nÞessi leið hefur verið mjög vinsæl gönguleið í gegnum árin enda afar falleg með Akrafjallið nánast í fanginu allan tímann. Nú er málið leyst því nýlega er búið að setja fína möl ofan á göngustíginn og ekkert mál lengur að taka rölt, hlaup eða hjólatúr í átt að fjallinu fagra.",
"innerBlocks": []
}