
Alexander Örn lyfti 300 kílóum í réttstöðulyftu. Ljósm. kraft.is
Alexander Örn með þrjú Íslandsmet á HM
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason gerði góða hluti á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í gær en mótið fer fram í borginni Sun City í Suður Afríku þessa dagana. Alexander Örn var að keppa á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í opnum flokki og átti frábæran dag. Hann lyfti 272,5 kílóum í hnébeygju, 190 kg í bekkpressu og 300 kg í réttstöðulyftu í mínus 93 kílóa flokki og setti Íslandsmet í hnébeygju og réttstöðulyftu. Þá bætti hann einnig eigið met í samanlögðu þar sem hann bætti sig um hvorki meira né minna en 25 kg. Alexander Örn lenti í 17. sæti í sínum flokki og náði 100,2 GL stigum og er þriðji Íslendingurinn til að ná þriggja stafa tölu á eftir kraftlyftingamönnunum Kristínu Þórhallsdóttur og Júlían J K Jóhannssyni.\r\n\r\nEvrópumeistarinn Kristín Þórhallsdóttir keppir síðan á morgun laugardag í mínus 84 kílóa flokki þar sem hún er önnur á heimslista en á síðasta ári hlaut hún bronsverðlaun á HM og gull á Evrópumótinu. Keppnin hefst klukkan hálf átta að íslenskum tíma.",
"innerBlocks": []
}