
Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Ljósm. Árný Huld Haraldsdóttir
Afmælisdagur sem ekki gleymist
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrsta júní síðastliðinn átti Baldvin Smárason bóndi á Bakka í Reykhólahreppi fertugsafmæli. Vitandi að allt er fertugum fært ákvað hann að verja deginum í að plægja spildu innar í dalnum, töluverðan spöl frá bænum. Það byrjaði nú ekki sérlega vel því þegar hann var að fara til að dæla olíu á traktorinn kom hann auga á dauða kind sem hann átti og var dánarorsök ókunn. Frá þessu var greint á vef Reykhólahrepps.\r\n\r\nÞar segir einnig að þegar Baldvin var um það bil hálfnaður að plægja tók hann eftir því að það rýkur undan vélarhlífinni á traktornum og hann snaraðist út til að athuga hverju þetta sæti. Þá var farið að loga undir húsinu og jókst hratt. Þegar hann ætlaði að hringja í Neyðarlínuna áttaði hann sig á að síminn var inni í vélinni og eldurinn hafði magnast það mikið að hann ákvað að reyna ekki að ná í símann.\r\n\r\nHann hljóp af stað heim og var ekki kominn marga tugi metra þegar húsið á traktornum var orðið alelda. Þegar slökkviliðið kom var mest allt brunnið sem brunnið gat og gekk greiðlega að slökkva, eldur hafði borist í sinu en nógu mikill raki var í jörðinni svo auðvelt var að ráða við það. Sem eðlilegt var þótti Baldvini þetta ekki ákjósanlegur endir á afmælisdeginum en bar sig samt vel.\r\n\r\nFram kemur í fréttinni á heimasíðu Reykhólahrepps að Árný Huld, kona Baldvins, hafði án hans vitundar undirbúið veislu sem haldin var í íþróttasalnum á Reykhólum helgina á eftir og boðið þangað vinum og fjölskyldum.\r\n\r\nÞegar átti að plata hann undir einhverju yfirskini út að Reykhólum í veisluna, þá fannst símalaus Baldvin ekki en hann hafði þá bara skotist yfir að Brekku, grunlaus um að nokkuð merkilegt stæði til. Hann varð svo bæði hissa og glaður þegar hann hitti veislugestina og líka hissa á að krakkarnir þeirra Árnýjar Huldar skyldu geta haldið þessu leyndu.",
"innerBlocks": []
}