Fréttir

true

Brimir BJJ opnað á nýjum stað

Brimir BJJ verður opnað á nýjum stað við Smiðjuvelli 17 á Akranesi laugardaginn 15. janúar. Valentin Fels Camilleri opnaði Brimir BJJ á Akranesi í ágúst 2020 og kennir þar bardagaíþróttina brasilískt jiu-jitsu. Í tilefni opnunarinnar mun bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson heimsækja stöðina og haldin verður sýnikennsla fyrir gesti. Húsið verður opnað kl. 9:45 og unglingaviðburður fyrir…Lesa meira

true

Hættur skipstjórn en orðinn reddari í landi

Ragnar Konráðsson hætti nýverið sem skipstjóri á línubátnum Örvari SH eftir að hafa starfað sem skipstjóri þar um borð í 29 ár. „Ég byrjaði á sjó 8. febrúar 1973 á Svani SH 111 og er því búinn að vera á sjó í 48 ár. Því fannst mér tími til að fara í land og gera…Lesa meira

true

Stærsti súrálsfarmur sögunnar á Grundartanga

Viku af desember kom súrálsskipið M/V Selena með stærsta súrálsfarm sem hefur komið á Grundartanga, um 55 þúsund tonn, en frá þessu segir á vef Faxaflóahafna. Skipið Selena er útbúið til flutninga á þurrefni, var smíðað árið 2020 og siglir undir flaggi Barbados. Það er með allra stærstu skipum sem hafa komið á Grundartanga en…Lesa meira

true

Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir á landamærunum

Á fundi ríkisstjórnar í morgun var ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna Covid-19 til 28. febrúar nk. Þá var ákveðið að tillaga um fyrirkomulag á landamærum fyrir vorið verði kynnt fyrir 20. febrúar. Í samræmi við ósk sóttvarnalæknis skoðaði landamærahópur forsætisráðherra hvort forsendur væru fyrir því að krefja farþega um neikvætt…Lesa meira

true

Vilja netabáta til samstarfs í rallið

Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, óskað eftir bjóðendum í gagnvirkt innkaupakerfi (DPS) til leigu á netabátum til að stunda netaveiðar í rannsóknar- og gagnaöflunarskyni vegna verkefnisins „Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum“. Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leiðangrar yfirleitt fram í apríl og reynt…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri aðfararnótt fimmtudags

Guð viðvörun er nú í gildi um vestan- og sunnanvert landið fyrir miðvikudagskvöld og fram að hádegi á fimmtudag. Kröpp lægð kemur þá upp að vestanverðu landinu. Við Faxaflóa er gul viðvörun frá klukkan 22 á miðvikudagskvöld fram að hádegi á fimmtudag. Þar verður suðaustan 20-25 m/s. „Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll,…Lesa meira

true

Þorrablót Skagamanna í streymi

Hið árlega Þorrablót Skagamanna verður laugardaginn 22. janúar næstkomandi og verður í streymi eins og í fyrra sökum samkomutakmarkana. Ef að líkum lætur verður boðið upp á veglegt happdrætti, valinn Skagamaður ársins, Skagaskaupið sýnt og vafalaust margt fleira sem verður til skemmtunar. Miðasala hefst á næstu dögum.Lesa meira

true

Fjölgar í hópi smitaðra á Vesturlandi

Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi fjölgar milli daga um 35 með Covid-19 á Vesturlandi. Alls eru 180 í einangrun í landshlutanum og 132 í sóttkví. Hlutfallslega er langmest fjölgun smitaðra í Snæfellsbæ milli daga, þar sem 33 eru nú með veiruna og 21 að auki í sóttkví. Þessi fjölgun hafði m.a. þau áhrif í…Lesa meira

true

Fyrri hæðin að rísa í nýju fjölbýlishúsi

Nú eru framkvæmdir við Grundargötu 12-14 í Grundarfirði á miklu skriði og byrjað að reisa veggi neðri hæðar hússins. Myndarlegur krani er kominn sem hífir einingarnar á sinn stað. Þarna verða níu íbúðir á frábærum stað í bænum.Lesa meira

true

Alþjóða dagur punktaleturs er í dag

Í dag, 4. janúar, er alþjóðadagur punktaleturs, eða blindraleturs eins og flestir kalla það. Viðburðurinn er haldinn ár hvert til að auka vitund um mikilvægi blindraleturs sem samskiptatækis til að auka mannréttindi blindra og sjónskertra. Það var Frakkinn Louis Braille (1809-1852) sem var blindur á báðum augum. Þegar hann var 16 ára gamall fann hann…Lesa meira