
Ríkiskaup auglýsa eftir bátum til netaveiða í sjó. Hér eru hins vegar netaveiðar á þurru landi, mynd frá litlu óhappi sem varð fyrir nokkrum árum á Mýrunum þegar sjómaður missti netið “útbyrðis”. Það er svo sem ekkert nýtt að þorskar veiðist á þurru landi, en sú var þó ekki raunin í þessu tilfelli. Ljósm. Skessuhorn/hb.
Vilja netabáta til samstarfs í rallið
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, óskað eftir bjóðendum í gagnvirkt innkaupakerfi (DPS) til leigu á netabátum til að stunda netaveiðar í rannsóknar- og gagnaöflunarskyni vegna verkefnisins „Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum“. Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leiðangrar yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1. apríl. „Markmið rannsóknanna er að safna upplýsingum um kynþroska, aldur, lengd og þyngd þorsks á helstu hrygningarsvæðum. Einnig að meta árlega magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum,“ segir í tilkynningu. Sækja þarf um fyrir hádegi 27. janúar nk.",
"innerBlocks": []
}