{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi fjölgar milli daga um 35 með Covid-19 á Vesturlandi. Alls eru 180 í einangrun í landshlutanum og 132 í sóttkví. Hlutfallslega er langmest fjölgun smitaðra í Snæfellsbæ milli daga, þar sem 33 eru nú með veiruna og 21 að auki í sóttkví. Þessi fjölgun hafði m.a. þau áhrif í Snæfellsbæ að a.m.k. þrír bátar gátu ekki haldið til veiða í gær. Smituðum fjölgar einnig á svæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi, þar sem 61 er nú í einangrun og 31 í sóttkví. Á Akranesi fjölgar um fimm, nú eru 63 í einangrun og 61 í sóttkví. Í Dölum eru ellefu í einangrun og tíu í sóttkví. Í Grundarfirði og Stykkishólmi eru sex á hvorum stað í einangrun, en að auki þrír í sóttkví í Grundarfirði og sex í Stykkishólmi.",
"innerBlocks": []
}
Fjölgar í hópi smitaðra á Vesturlandi - Skessuhorn