
Súrálsskipið Selena. Ljósm. Marine Traffic.
Stærsti súrálsfarmur sögunnar á Grundartanga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Viku af desember kom súrálsskipið M/V Selena með stærsta súrálsfarm sem hefur komið á Grundartanga, um 55 þúsund tonn, en frá þessu segir á vef Faxaflóahafna. Skipið Selena er útbúið til flutninga á þurrefni, var smíðað árið 2020 og siglir undir flaggi Barbados. Það er með allra stærstu skipum sem hafa komið á Grundartanga en það er alls 35.752 brúttótonn að stærð: 199 metra langt og 32 metrar að breidd. Skipið tók farminn í Ástralíu og tók siglingin til Íslands tæplega tvo mánuði en skipið lagði af stað um miðjan október. Næst stærsti súrálsfarmur sem hefur komið á Grundartanga kom árið 2020 þegar M/V Ultra Diversity kom með 54.975 tonn af súráli.\r\n\r\nVið komuna til Grundartanga varð reyndar það óhapp að Selena rakst harkalega í bryggjuna. Skemmdist hún á 12-15 metra kafla. Dæld og rispur komu einnig á bakborðskinnung Selenu en til allrar mildi kom ekki gat á skipið. Ekki kom gat á bryggjuþilið við ásiglinguna en þó er sprunga þar sem þarf að gera við. Nákvæm kostnaðaráætlun vegna skemmdanna liggur ekki fyrir en ljóst er að kostnaðurinn er talsverður. Áætlað er að viðgerð fari fram næsta vor en útgerð skipsins eða tryggingafélag hennar mun væntanlega bera kostnaðinn. Rannsókn hefur farið fram á atvikinu og ljóst er að orsakirnar eru margþættar.",
"innerBlocks": []
}