
Ragnar var að kíkja á strákana um borð í Ólafi Bjarnasyni SH til þess að athuga hvort þeim vantaði eitthvað um borð. Ljósm. af.
Hættur skipstjórn en orðinn reddari í landi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ragnar Konráðsson hætti nýverið sem skipstjóri á línubátnum Örvari SH eftir að hafa starfað sem skipstjóri þar um borð í 29 ár. „Ég byrjaði á sjó 8. febrúar 1973 á Svani SH 111 og er því búinn að vera á sjó í 48 ár. Því fannst mér tími til að fara í land og gera eitthvað annað,“ sagði Ragnar í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nEn ekki fór Ragnar langt frá sjónum því nú hefur hann tekið til starfa sem ,,reddari“ hjá Fiskverkun KG. „Þar sinni ég öllu í kringum bátana; svo sem að fella net, mæla teina og hef eftirlit með bátum. Raunar það sem til fellur,“ segir Ragnar og brosir breitt. Hann kveðst afar sáttur við lífið og stillti sér glaður upp til myndatöku á kajanum á þriðja degi nýs árs.",
"innerBlocks": []
}