Fréttir

true

Breki Þór gerir samning við ÍA

Grundfirðingurinn Breki Þór Hermannsson skrifaði á Þorláksmessu undir sinn fyrsta samning við Knattspyrnufélag ÍA og gildir hann út tímabilið 2024. Breki Þór, sem er fæddur árið 2003, lék 15 leiki með Knattspyrnufélagi Kára í 2. deildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark. Þá lék hann einnig 18 leiki með sameiginlegu liði ÍA/Kára/Skallagríms í 2. flokki…Lesa meira

true

Veganúar hefst 3. janúar

Í ár voru málefni dýra og velferð þeirra mikið í umræðunni og stefnir í að metþátttaka verði í Veganúar 2022. Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar 2022 eins og endranær og verður glæsileg dagskráin að þessu sinni öll tiltæk í beinu streymi. Dagskrá hefst á upphafsfundi mánudaginn 3. janúar. Þar munu sérfræðingar fara yfir…Lesa meira

true

Enn eru laus störf í loðnufrystingu sem hefst í lok febrúar

Gert er ráð fyrir að loðnuhrognavinnsla hefjist hjá Brimi hf. á Akranesi í síðustu viku febrúarmánaðar og standi yfir í tvær til fjórar vikur. Ef væntingar manna ganga eftir, og í samræmi við þann upphafskvóta í loðnu sem gefinn hefur verið út, stefnir í að þessi vertíð verði ein sú stærsta í tæp 20 ár…Lesa meira

true

Sameiningarmálin verða kosningamál í vor

Grundarfjarðarbær bauð í haust hinum fjórum sveitarfélögunum á Snæfellsnesi til óformlegs fundar um stöðuna í sameiningarmálum og framtíðarsýn í þeim efnum fyrir Snæfellsnes. Grundarfjarðarbær er eina sveitarfélagið á Snæfellsnesi sem ekki er í formlegum sameiningaviðræðum eins og sakir standa. Snæfellsbær og Eyja- og Miklaholtshreppur stefna að kosningu um sameiningu í febrúar og Stykkishólmsbær og Helgafellssveit…Lesa meira

true

Staðan að þyngjast á landsbyggðinni vegna aukins álags

Rúmlega 13 þúsund manns eru nú í sóttkví eða einangrun í landinu. Undanfarna daga hafa verið slegin met í fjölda smitaðra, en í ljósi fjöldans hefur ekki verið hægt að hringja í alla smitaða vegna álags í smitrakningu. 744 voru greindir í gær og þar af 84 smit greind á landamærunum. Fólk er hvatt til…Lesa meira

true

Upplýsingafundur þríeykisins klukkan 11

Nú eru um tólf þúsund manns í samfélaginu ýmist í einangrun eða sóttkví með Covid-19. Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn í almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, halda nú klukkan 11 í dag upplýsingafund í útvarpi og sjónvarpi vegna ástandsins. Sóttvarnalæknir hefur til skoðunar hvort unnt sé að stytta sóttkví vegna covid og þeirra…Lesa meira

true

Kjör íþróttamanns Grundarfjarðar á gamlársdag

Þrjár tilnefningar bárust til kjörs á íþróttamanni Grundarfjarðar árið 2021 og verða úrslitin gerð kunn við hátíðlega athöfn í Sögumiðstöðinni á gamlársdag, föstudaginn 31. desember kl. 10:00, en frá þessu segir á vefsíðu bæjarins. Vegna samkomutakmarkana verður bein útsending frá viðburðinum. Tilnefningar bárust frá knattspyrnudeild UMFG, Hestaeigendafélagi Grundarfjarðar og Skotfélagi Snæfellsness og eru eftirtalin tilnefnd:…Lesa meira

true

Útdráttur leikfangahapprættis í streymi

Lionsklúbbur Ólafsvíkur stóð fyrir árlegu leikfangahappadrætti og var dregið út á aðfangadagsmorgun. Vegna samkomutakmarkanna var ekki hægt að koma saman og var því dregið í beinni útsendingu á YouTube. Föst jólahefð er að mæta á staðinn og fylgjast með útdrættinum, en nú fylgdist fólk með heima í stofu. Vinninga var svo hægt að vitja að…Lesa meira

true

Dýravelferð um áramót

Áramótin nálgast óðfluga með öllum sínum hefðum og gleðskap og þá er nauðsynlegt að minna sérstaklega á dýrin, sem eru stór hluti af okkar samfélagi. Ótal dæmi eru um ofsahræðslu og slys á dýrum í kringum áramótin og því vill Matvælastofnun biðja fólk um að taka tillit til þeirra og einskorða notkun á flugeldum og…Lesa meira

true

Kynningarfundur um nýsköpunarhraðal meðal kvenna

Nýsköpunarhraðall fyrir konur verður nú haldinn í annað sinn, en hann er á vegum AWE, Háskóla Íslands og Bandaríska sendiráðsins. Á morgun fimmtudag, verður haldinn kynningarfundur á netinu um hraðalinn og fer hann fram klukkan 12:00. Um er að ræða stafrænan fund sem konur skrá sig á til að fá frekari upplýsingar og eftir það…Lesa meira