
Upplýsingafundurinn er enn í gangi. Skjáskot af vef Ríkissjónvarpsins.
Staðan að þyngjast á landsbyggðinni vegna aukins álags
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rúmlega 13 þúsund manns eru nú í sóttkví eða einangrun í landinu. Undanfarna daga hafa verið slegin met í fjölda smitaðra, en í ljósi fjöldans hefur ekki verið hægt að hringja í alla smitaða vegna álags í smitrakningu. 744 voru greindir í gær og þar af 84 smit greind á landamærunum. Fólk er hvatt til að halda sig mikið heima, forðast fjölmenni og gæta að smitvörnum í hvívetna. Á fundi þríeykisins; Þórólfs, Ölmu og Víðis sem nú stendur yfir, er farið yfir stöðuna.\r\n\r\nÍ máli Þórólfs Guðnasonar kom fram að alvarleg veikindi eru hlutfallslega fátíðari nú þrátt fyrir fjölgun sýktra. Auk Omikron afbrigðisins er fólk enn að veikjast af Delta afbrigðinu. Eðlislæg einkenni Omikron virðast hins vegar vægari en af fyrri afbrigðum veirunnar. Örvunarbólusetning er að gefa góða raun. Þórólfur sagði að mat hans væri að nauðsynlegt sé að halda faraldrinum í skefjum eitthvað lengur. Sagði hann frá því að Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur nú gefið út leiðbeiningar, en þær eru þó ekki afgerandi. Megin tilgangur þeirra er að koma fólki fljótt út í virkni, stytta tíma í einangrun. Mikilvægum spurningum sé þó enn ósvarað og því er ekki lögð til stytting tíma í sóttkví og einangrun hjá þeim sem eru með Omikron afbrigðinu. Nú er verið að skoða að upplýsa fólk um hvaða afbrigði veirunnar það er að sýkjast af.\r\n\r\nÞórólfur sagði að lokum að nú væri að byggjast upp ónæmi. Hvatti hann til að fólk gæti vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum.\r\n\r\nAlma Möller sagði að Landspítalinn væri nú á neyðarstigi. Unnið sé að lausnum, m.a. er verið að flytja sjúklinga af Landspítala og á aðrar heilbrigðisstofnanir. 21 eru nú á sjúkrahúsinu með veiruna, þar af 18 með virk smit. Sex liggja á gjörgæslu og þrír þeirra í öndunarvél. 5.800 eru í fjarþjónustu göngudeildar. Flestir með lítil eða engin einkenni. 231 eru á „gulu,“ þurfa eftirlit, og þrír á „rauðu,“ sem krefst stöðugs eftirlits. Alma segir að staðan á heilbrigðisstofnunun á landsbyggðinni sé að þyngjast vegna aukins álags.\r\n\r\nAð endingu hvatti Alma Möller landlæknir landsmenn alla að ganga hægt um gleðinnar dyr á gamlárskvöld.",
"innerBlocks": []
}