
Hrognum pakkað til frystingar. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Enn eru laus störf í loðnufrystingu sem hefst í lok febrúar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Gert er ráð fyrir að loðnuhrognavinnsla hefjist hjá Brimi hf. á Akranesi í síðustu viku febrúarmánaðar og standi yfir í tvær til fjórar vikur. Ef væntingar manna ganga eftir, og í samræmi við þann upphafskvóta í loðnu sem gefinn hefur verið út, stefnir í að þessi vertíð verði ein sú stærsta í tæp 20 ár og þörf á mannskap í vinnsluna á Akranesi gæti verið á bilinu 80 til 100 manns. Að jafnaði er unnið á vöktum allan sólarhringinn á meðan vertíðin stendur yfir. Fjölbreytt störf eru í boði meðal annars við pökkun hrogna, vinnu við frystilínu, eftirlit með vélum og störf á lyftara.\r\n\r\nDalamaðurinn Arnar Eysteinsson í Stórholti hefur haft milligöngu um að útvega mannskap í vinnsluna síðustu ár og Skessuhorn heyrði í honum hvernig gengi að finna fólk í öll þessi störf. Arnar segir að það hafi gengið alveg ágætlega hingað til en þó vanti enn eitthvað af fólki. Mannskapurinn komi víða að; úr Dölum, af Snæfellsnesi, norðan af Ströndum og þá séu margir búsettir á Akranesi sem hafi sent inn umsóknir. „Síðustu ár hafa þetta verið um 30 sólarhringsstörf sem hafa verið í boði nema í fyrra því þá var svo lítið fryst en það bætist mikið við það núna. Oft hafa kannski verið um 70 störf sem hafa verið á blaði sem þurfti að gera skil á en nú bætast við rúmlega tíu sólarhringsstörf að minnsta kosti.“\r\n\r\nEn hvernig kom það til að Arnar tók að sér að ráða í störf hjá Brimi á Akranesi? „Fyrsta vertíðin sem ég fór á var árið 2001. Ég var að vinna við landanir hjá Djúpakletti sem er núna í Grundarfirði en þeir voru með landanir þarna og sáu um loðnuvertíðina líka allt til 2005. Þá hættu þeir og þá hélt ég að þetta ævintýri væri búið. Síðan árið eftir var hringt í mig, ég spurður hvort ég geti reddað nokkrum köllum og það hefur undið upp á sig og ég hef séð um þetta síðan. Það var miklu erfiðara hér áður fyrr að finna fólk í vinnu, fyrir tíma samfélagsmiðlana. Þá lágum við í símanum, ef okkur datt einhver í hug einhvers staðar þá hringdum við í hann og það vatt svo upp á sig. Það var mjög lengi sami kjarninn í þessu en svo hefur kvarnast úr honum síðustu ár, bæði sökum aldurs og vegna annarra þátta.“\r\n\r\nArnar segir einnig að það sé í raun pláss fyrir alla í loðnufrystingunni, það þurfi auðvitað að vinna en það sé hægt að finna léttari störf inn á milli og vinnutíminn er sveigjanlegur eftir því hvað fólk vill. Arnar segir að í dag sé hann verkstjóri en fyrst hafi hann verið á vöktum líka: „Ég hætti kannski á vakt fjögur á daginn, fór að sofa klukkan níu um kvöldið og aftur á vakt um miðnætti, það gekk ekki alveg upp til lengdar og ég er löngu hættur því.“\r\n\r\nArnar er sauðfjárbóndi í Stórholti 2 í Saurbæ í Dalabyggð og er með um 600 fjár. Í fjarveru Arnars yfir vertíðina hefur kona hans, Ingveldur Guðmundsdóttir, séð um bústörfin á meðan og er fyrir löngu orðin vön í þeim efnum. „Konan hefur líka verið öflug að aðstoða mig að finna fólk í gegnum árin og sér um búið á meðan ég er í burtu ásamt því að vera í fullu starfi á heilsugæslustöðinni í Búðardal,“ segir Arnar að lokum.\r\n\r\nÞeir sem hafa hug á að fá vinnu við vertíðina eða vilja fá nánari upplýsingar geta sent póst á lodnuvertid@gmail.com þar sem fram þarf að koma nafn, kennitala og símanúmer og einnig mætti taka fram hversu mikilli vinnu viðkomandi óskar eftir.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49920\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49920 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Enn-eru-laus-storf-i-lodnufrystingu-sem-hefst-i-lok-februar_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Venus bundin við Akranesbryggju.[/caption]",
"innerBlocks": []
}