Upplýsingafundur þríeykisins klukkan 11

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú eru um tólf þúsund manns í samfélaginu ýmist í einangrun eða sóttkví með Covid-19. Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn í almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, halda nú klukkan 11 í dag upplýsingafund í útvarpi og sjónvarpi vegna ástandsins.\r\n\r\nSóttvarnalæknir hefur til skoðunar hvort unnt sé að stytta sóttkví vegna covid og þeirra sem sæta einangrun. Hann sagði í viðtali í sjónvarpi í gærkvöldi varhugavert sé að líta á veiruna sem kvef þó svo að einkenni Omikrón afbrigðisins virðist vægari en af fyrri afbrigðum veirunnar.\r\n\r\nNú liggur 21 sjúklingurinn á Landspítalanum með Covid, þar af eru 18 með virkt smit. Fjórir eru á gjörgæslu, þrír í öndunarvél. Landspítalinn starfar nú á neyðarstigi vegna fjölda sýktra og vegna þess að smit er einnig í hópi starfsfólks og sjúklinga.",
  "innerBlocks": []
}
Upplýsingafundur þríeykisins klukkan 11 - Skessuhorn