Veganúar hefst 3. janúar
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í ár voru málefni dýra og velferð þeirra mikið í umræðunni og stefnir í að metþátttaka verði í Veganúar 2022. Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar 2022 eins og endranær og verður glæsileg dagskráin að þessu sinni öll tiltæk í beinu streymi. Dagskrá hefst á upphafsfundi mánudaginn 3. janúar. Þar munu sérfræðingar fara yfir hugmyndafræði veganisma og ávinning þess að taka upp grænkeralífstíl fyrir umhverfi og heilsu.  Valgerður Árnadóttir formaður SGÍ verður fundarstjóri og fyrirlesarar að þessu sinni verða þau:\r\n
\r\n \t
Gunnar Theodór Eggertsson rithöfundur, sem fer yfir hugmyndafræði veganisma og dýrasiðfræði.
\r\n \t
Elín Sandra Skúladóttir stjórnarformaður hjá Krafti, stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda, sem fjallar um heilsufarslegan ávinning grænkerafæðis.
\r\n \t
Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar, sem fjallar um umhverfisáhrif dýraafurðaiðnaðarins.
\r\n
janúar 20:00 Upphafsfundur - Sérfræðingar fara yfir hugmyndafræði veganisma og ávinning þess að taka upp grænkeralífstíl fyrir umhverfi og heilsu.
\r\n \t
janúar 20:00 Trúnó! - Þorsteinn V. Einarsson sem þekktur er fyrir samfélagsmiðlaátakið og hlaðvarpið Karlmennskan stýrir umræðu þar sem viðmælendur segja frá sínu ferðalagi í grænkeralífstíl og hver ávinningur og áskoranir þess séu.
\r\n \t
janúar 20:00 Málþing: Verksmiðjubúskapur Er betur farið með dýr á Íslandi? - Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir ræðir við hagsmunaaðila og stjórnmálafólk um stöðu verksmiðjubúskapar á Íslandi og það hvort betur sé farið með húsdýr hér á landi en annars staðar.
\r\n \t
janúar 12:00 Hádegisfundur Landverndar: Náttúruvernd & búfé
\r\n \t
janúar 20:00 Grænleikar: Kviss og keppni með Birtu Íseyju
\r\n
\r\n \r\n\r\nMerki Veganúar 2022 er að þessu sinni teiknað af Natka Klimowicz listakonu og sýnir konu hlaupa með frjálsri hænu.\r\n\r\nVeganúar er viðburður, eða áskorun, sem haldinn er í janúarmánuði ár hvert og hefur það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti grænkerafæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd. Samtök grænkera á Íslandi hafa staðið fyrir þessari árlegu Veganúar áskorun síðan 2016 og er þetta því í sjöunda sinn sem við höldum hana hérlendis.\r\n\r\nfréttatilkynning",
"innerBlocks": []
Veganúar hefst 3. janúar - Skessuhorn