{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýsköpunarhraðall fyrir konur verður nú haldinn í annað sinn, en hann er á vegum AWE, Háskóla Íslands og Bandaríska sendiráðsins. Á morgun fimmtudag, verður haldinn kynningarfundur á netinu um hraðalinn og fer hann fram klukkan 12:00. Um er að ræða stafrænan fund sem konur skrá sig á til að fá frekari upplýsingar og eftir það verður hægt að sækja um í hraðalinn og lýkur skráningunni 17. janúar. Allar konur á öllum aldri og líka konur af erlendu bergi brotnu geta tekið þátt í hraðlinum og hann fer að mestu máli fram á netinu svo að búseta skiptir ekki máli.\r\n\r\nÍ fyrra var einn af sigurvegurum í hraðlinum Jamie Lee, en hún sigraði í lyftukeppninni svokölluðu fyrir verkefnið sitt <em>Fine Foods Islandica</em> sem ætlað er að draga úr matarsóun með því að fullnýta sjávarfang og nýta þang til að búa til þurrkaðar gæðavörur til matargerðar. Hún vinnur verkefnið út frá Reykhólahreppi.\r\n\r\n<strong>- sjá nánar: <a href=\"https://awe.hi.is/\">https://awe.hi.is/</a></strong>",
"innerBlocks": []
}
Kynningarfundur um nýsköpunarhraðal meðal kvenna - Skessuhorn