Útdráttur leikfangahapprættis í streymi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lionsklúbbur Ólafsvíkur stóð fyrir árlegu leikfangahappadrætti og var dregið út á aðfangadagsmorgun. Vegna samkomutakmarkanna var ekki hægt að koma saman og var því dregið í beinni útsendingu á YouTube. Föst jólahefð er að mæta á staðinn og fylgjast með útdrættinum, en nú fylgdist fólk með heima í stofu. Vinninga var svo hægt að vitja að útdrætti loknum. Vilja Lionsmenn koma á framfæri þakklæti til þeirra sem styrktu happadrættið sem og þeirra sem tóku þátt.",
  "innerBlocks": []
}
Útdráttur leikfangahapprættis í streymi - Skessuhorn