Fréttir

true

Tillaga að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf í Hvalfjarðarsveit

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. að Hurðarbaki í Hvalfjarðasveit, er varðar þéttbært eldi alifugla (kjúklinga) en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins. Um er að ræða stækkun á eldisheimild Matfugls ehf. Tillagan gerir ráð fyrir eldisrými fyrir 136.000 fugla og að uppfylltum skilyrðum frekari stækkun í eldisrými fyrir 192.000 fugla. Framkvæmdin fór…Lesa meira

true

Lilja Björg söng Walking in the Air

Tuttugasti og annar gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var Lilja Björg Eiríksdóttir sem opnaði gluggann með laginu Walking in the Air úr teiknimyndinni The Snowman sem kom út árið 1982. Lag og texti eru eftir Howard Blake. Lilja er fædd og uppalin á Akranesi og hefur sungið frá…Lesa meira

true

Stefnir í betri rekstrarafkomu hjá Borgarbyggð

Samanburður á rekstri Borgarbyggðar fyrstu tíu mánuði ársins við fjárhagsáætlun leiðir í ljós að rekstrarafkoma sveitarfélagsins er betri en áætlað var á þessum tíma árs eða um samtals 185 milljónir króna en frá þessu segir á vef Borgarbyggðar. Skatttekjur sveitarfélagsins eru heldur hærri en gert var ráð fyrir og munar þar mestu um að staðgreiðsla…Lesa meira

true

Skatan hreinsuð

Í gær voru félagar í Lionklúbbi Ólafsvíkur í óðaönn að skera og þrífa skötuna sem þeir selja í fjáröflunarskyni. Magnús Guðni Emanúelsson sagði í samtali við Skessuhorn að þeir seldu skötuna á veitingastaði og til verslana og áætlaði hann að þeir væru að selja um tvö til fjögur hundruð kíló í ár. „Þetta er úrvalsskata…Lesa meira

true

Landlaus kaupstaðarbúi flutti í sveit

Þann 1. september síðastliðinn létu hjónin Jökull Helgason og Guðný Elíasdóttir drauminn sinn verða að veruleika þegar þau fluttu búferlum í sveitina. Verandi bæði mikið hestafólk var hestamennskan orðið það fyrirferðarmikið áhugamál og stór hluti af þeirra daglega lífi að ákveðið var að þau færðu sig um set frá Akranesi að Mófellsstöðum í Skorradal. „Sem…Lesa meira

true

Rit um Búnaðarfélag Andakílshrepps

Ritið „Búnaðarfélag Andakílshrepps og annar búnaðarfélagsskapur þar frá 1850“ hefur nú verið birt á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands. Ritið er skrifað af Bjarna Guðmundssyni prófessor. Í formála þess segir Bjarni frá því að hann fékk það hlutverk þegar Búnaðarfélag Andakílshrepps varð 100 ára, árið 1981, að skrifa stutta aldarsögu félagsins til að birta í byggðasögu Búnaðarsambands…Lesa meira

true

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna og slysahættu um hátíðirnar

Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum, þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira. Í ljósi þess að nú gengur í garð…Lesa meira

true

Skemmtileg listsýning í Sögumiðstöðinni

Rúmenska listakonan Larisa Crunteanu hefur síðustu vikur dvalið í Grundarfirði í samvinnu við Artak350 sem rekur gestavinnustofu í bænum. Dvöl hennar er hluti af menningarverkefni í Rúmeníu sem er í samstarfi við Artak350. Larisa sýndi svo afrakstur vinnunnar sunnudaginn 12. desember í Bæringsstofu, bíósal Sögumiðstöðvarinnar. Larisa vinnur með myndbandsverk, flutning og hljóðsöfn. Með verkum sínum…Lesa meira

true

Minna fólk á eldvarnir og heimsækja leikskóla

Neisti, félag slökkviliðsmanna í Borgarbyggð, var nú í aðdraganda jóla með upplýsingaherferð til að minna á þá ógn sem eldsvoðar geta verið. Fyrr í mánuðinum voru félagsmenn fyrir utan verslanir í Borgarnesi og kenndu réttu handtökin við notkun eldvarnarteppa og minntu fólk á að huga vel að eigin eldvörnum; að yfirfara reykskynjara og slökkvitæki á…Lesa meira

true

Valkostaskýrsla um Holtavörðuheiðarlínu 1

Vinna við mat á umhverfisáhrifum Holtavörðuheiðarlínu 1 er nú að hefjast. Það er liður í því að setja fram valkosti um framkvæmd verkefnisins. Búið er að leggja fram valkostaskýrslu með tillögum um raunhæfa valkosti Holtavörðuheiðarlínu 1. Þar er farið yfir hugmyndir og ábendingar sem komu fram í samráðsvinnu við hagsmunaaðila og landeigendur. En Holtavörðuheiðarlína 1…Lesa meira