Tillaga að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf í Hvalfjarðarsveit
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. að Hurðarbaki í Hvalfjarðasveit, er varðar þéttbært eldi alifugla (kjúklinga) en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins. Um er að ræða stækkun á eldisheimild Matfugls ehf. Tillagan gerir ráð fyrir eldisrými fyrir 136.000 fugla og að uppfylltum skilyrðum frekari stækkun í eldisrými fyrir 192.000 fugla.\r\n\r\nFramkvæmdin fór í mat á umhverfisáhrifum og birti Skipulagsstofnun álit vegna þessa þann 14. ágúst 2019. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að stofnunin telji að neikvæðustu áhrif vegna stækkaðs kjúklingabús verði vegna ólyktar frá eldishúsum og að áhrif á loftgæði á nærliggjandi bæjum vestan við Hurðarbak verði talsvert neikvæð. Vegna óvissu um hversu mikil óþægindi nágrannar Hurðarbaks muni upplifa í kjölfar stækkunarinnar lagði Skipulagsstofnun til að ekki yrði ráðist í fulla stækkun í 192.000 fuglastæði í einum áfanga, heldur yrði heimiluð stækkun bundin við smærri áfanga. Að teknu tilliti til álits Skipulagsstofnunar og hagkvæmra eininga rekstraraðila leggur Umhverfisstofnun því til að fyrsti áfangi stækkunar verði 136.000 fuglastæði. Að loknum tveggja ára reynslutíma af rekstri eldishúsanna og ákveðnum skilyrðum uppfylltum, er snúa að losun lyktarvaldandi ammoníaks (NH3), verði heimilt að hefja rekstur í viðbótareldishúsum að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og heildareldisrými verði þá fyrir allt að 192.000 fugla.\r\n\r\nStarfsleyfistillagan tekur tillit til þeirra krafna sem gerðar eru í bestu aðgengilegu tækni (BAT-niðurstaðna) og starfsreglum um góða búskaparhætti í landbúnaði ásamt krafna skv. stjórn vatnamála m.t.t. starfsvenja, losunar í loft (ryk/lykt) og mögulegrar losunar næringarefna í nærliggjandi vatnshlot vegna meðhöndlunar húsdýraáburðar.\r\n\r\nTillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 16. desember til og með 15. janúar 2022.",
"innerBlocks": []
}
Tillaga að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn