Börnin fengu öll boli merkta Slökkviliði Borgarbyggðar. Ljósm. Brynja Gná Heiðarsdóttir

Minna fólk á eldvarnir og heimsækja leikskóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Neisti, félag slökkviliðsmanna í Borgarbyggð, var nú í aðdraganda jóla með upplýsingaherferð til að minna á þá ógn sem eldsvoðar geta verið. Fyrr í mánuðinum voru félagsmenn fyrir utan verslanir í Borgarnesi og kenndu réttu handtökin við notkun eldvarnarteppa og minntu fólk á að huga vel að eigin eldvörnum; að yfirfara reykskynjara og slökkvitæki á heimilum. Félagsmenn hafa einnig heimsótt leikskóla í sveitarfélaginu og rætt við börnin um eldvarnir og gefið þeim boli merkta Slökkviliði Borgarbyggðar. Fyrir þá sem vilja styrkja félagið er hægt að finna dagatal Neista til sölu í Kaupfélagi Borgfirðinga.",
  "innerBlocks": []
}
Minna fólk á eldvarnir og heimsækja leikskóla - Skessuhorn