{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ritið „Búnaðarfélag Andakílshrepps og annar búnaðarfélagsskapur þar frá 1850“ hefur nú verið birt á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands. Ritið er skrifað af Bjarna Guðmundssyni prófessor. Í formála þess segir Bjarni frá því að hann fékk það hlutverk þegar Búnaðarfélag Andakílshrepps varð 100 ára, árið 1981, að skrifa stutta aldarsögu félagsins til að birta í byggðasögu Búnaðarsambands Borgarfjarðar. Þegar Bjarni hafði lokið við skrifin var verkið orðið mun stærra en áætlað var og skrifaði hann þá úrdrátt sem birtist í ritverkinu Byggðir Borgarfjarðar. Í mars síðastliðnum var Bjarni beðinn um að annast stutta sögustund á aðalfundi búnaðarfélagsins í tilefni 140 ára afmæli þess. Dró hann þá drögin fram á ný. Á aðalfundinum var samþykkt að reyna að koma sögu félagsins fyrir sjónir áhugasamra og hefur Bjarni síðan unnið að því að skrifa söguna. „Ekki er þó um að ræða að félags- eða búnaðarsaga hreppsins sé sögð með tæmandi hætti; til þess hefði þurft að leggja í mun meiri tíma og vinnu við rannsókn heimilda en efni stóðu til hér. Eftirfarandi rit á þó að gefa dálitla hugmynd um það helsta sem bjástrað hefur verið við á vettvangi Búnaðarfélagsins og hvernig það hefur með beinum og óbeinum hætti stuðlað að þróun búskapar og mannlífs á félagssvæðinu,“ segir í formála ritsins „Búnaðarfélag Andakílshrepps og annar búnaðarfélagsskapur þar frá 1850“.\r\n\r\n<a href=\"https://www.lbhi.is/sites/lbhi.is/files/gogn/vidhengi/rit_lbhi_nr_145_bunadarfelag_andakilshrepps_301121_lok.pdf\">Hlekkur á ritið</a>",
"innerBlocks": []
}