{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vinna við mat á umhverfisáhrifum Holtavörðuheiðarlínu 1 er nú að hefjast. Það er liður í því að setja fram valkosti um framkvæmd verkefnisins. Búið er að leggja fram valkostaskýrslu með tillögum um raunhæfa valkosti Holtavörðuheiðarlínu 1. Þar er farið yfir hugmyndir og ábendingar sem komu fram í samráðsvinnu við hagsmunaaðila og landeigendur. En Holtavörðuheiðarlína 1 er 220 kV loftlína sem Landsnet hefur áform um að leggja frá Klafastöðum í Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði, sem er um 90 km löng leið. Samkvæmt skýrslunni er línan á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar Landsnets 2020-2029 og er áætlað að hefja framkvæmdir árið 2024.\r\n\r\nSkýrsluna er hægt að nálgast á vefsíðu Landsnet. Ábendingar og athugasemdir skal senda á netfangið <a href=\"mailto:landsnet@landsnet.is\">landsnet@landsnet.is</a> en frestur til þess er til 7. janúar næstkomandi.",
"innerBlocks": []
}
Valkostaskýrsla um Holtavörðuheiðarlínu 1 - Skessuhorn