{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rúmenska listakonan Larisa Crunteanu hefur síðustu vikur dvalið í Grundarfirði í samvinnu við Artak350 sem rekur gestavinnustofu í bænum. Dvöl hennar er hluti af menningarverkefni í Rúmeníu sem er í samstarfi við Artak350. Larisa sýndi svo afrakstur vinnunnar sunnudaginn 12. desember í Bæringsstofu, bíósal Sögumiðstöðvarinnar.\r\n\r\nLarisa vinnur með myndbandsverk, flutning og hljóðsöfn. Með verkum sínum skapar hún samhengi þar sem staðreyndir og minningar eru endurvaktar. Mörg verka hennar endurspegla hugmyndir sem liggja að baki hluta og sagna. Verk hennar flakka milli raunveruleikans og skáldskapar í endalausu samtali við áhorfandann og spila á óljósum mörkum milli myndbandslistar, kvikmyndagerðar og heimildamyndagerðar.\r\n\r\n„Ég er fædd og uppalin í Rúmeníu og er frá litlum bæ í fjöllunum sem er ekki ósvipaður þessum,“ segir Larisa í stuttu spjalli við fréttaritara. „Eftir menntaskóla flutti ég til Búkarest þar sem ég lærði BA í fjölmiðlafræði, MA í pólitískum samskiptum, MA í ljósmyndun og hreyfimyndum og svo PhD í sjónrænni list og ég er að vonast til að gefa út bók á næsta ári,“ bætir hún við. Hún hefur haldið sýningar víðs vegar um heiminn á virtum stofnunum eins og National Museum of Contemporary Art í Búkarest, SAVVY í Berlín, Zacheta Project Room í Varsjá svo eitthvað sé nefnt.\r\n\r\n„Ég fékk boð um að koma til Grundarfjarðar í gegnum Artak og mér leist strax vel á þá hugmynd. Þetta var einstakt tækifæri til að prófa eitthvað nýtt og koma á þennan einstaka stað sem Ísland er. Hér er landslagið svo magnað og framandi.“\r\n\r\nSýningin í Grundarfirði er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Hún naut góðrar aðstoðar frá Lúðvík Karlssyni og Salbjörgu Nóadóttur við uppsetningu sýningarinnar. Það er alveg magnað að vakna upp á hverjum degi með þessa póstkortamynd af fjöllunum hérna í kring,“ segir hún en væri alveg til í að hafa aðeins fleiri klukkutíma með dagsbirtu. Á meðfylgjandi mynd eru þau Lúðvík Karlsson eða Liston, Þóra Karlsdóttir eigandi Artak350 og Larisa Crunteanu sem er hér lengst til hægri.",
"innerBlocks": []
}
Skemmtileg listsýning í Sögumiðstöðinni - Skessuhorn