
Illugi Jónasson, Magnús Guðni Emanúelsson og Stefán Kristófersson, að verka skötuna. Ljósm. af
Skatan hreinsuð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gær voru félagar í Lionklúbbi Ólafsvíkur í óðaönn að skera og þrífa skötuna sem þeir selja í fjáröflunarskyni. Magnús Guðni Emanúelsson sagði í samtali við Skessuhorn að þeir seldu skötuna á veitingastaði og til verslana og áætlaði hann að þeir væru að selja um tvö til fjögur hundruð kíló í ár. „Þetta er úrvalsskata sem færi létt með að drepa kórónuveikina,“ sagði Magnús skellihlæjandi, og bætti við að þeir kæstu skötuna í 4 til 6 vikur en skötuna keyptu þeir á fiskmörkuðum. Lionsklúbburinn hefur verkað og selt skötu í tugi ára segir Magnús enn fremur. „Við erum með ekta skötu. Þetta byrjaði hjá okkur fyrir tugum ára, þegar við í Lions fórum út að borða saman á veitingastöðum, okkur til ánægju ásamt mökum. Í framhaldi af því fórum við að verka sjálfir,“ segir Magnús. „Þetta er jólahefð hjá okkur félögunum. Við höfum alltaf verið með skötukvöld fyrir um 80 manns en höfum sleppt því núna síðustu tvö ár vegna ástandsins,“ bætir hann við.",
"innerBlocks": []
}