Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna og slysahættu um hátíðirnar

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum, þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira.\r\n\r\nÍ ljósi þess að nú gengur í garð sá árstími þar sem hætta er á eldsvoðum af völdum kertaljósa og jólaskreytinga hefur Bjarni K. Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð tekið saman lista með atriðum sem nauðsynlegt er að hafa í huga um hátíðirnar. Bjarni tekur fram að hann mælir fyrir hönd allra slökkviliða í landshlutanum, sömu heilræði eiga alls staðar við. Ábendingar Bjarna fylgja hér á eftir.\r\n\r\n \r\n\r\nLágmarkseldvarnir á heimilum eru:\r\n
\r\n \t
Virkir reykskynjarar, tveir eða fleiri.
\r\n \t
Léttvatns- eða duftslökkvitæki við helstu flóttaleið.
\r\n \t
Eldvarnateppi á sýnilegum stað í eldhúsi.
\r\n
\r\n \r\n\r\nGætum varúðar um jól og áramót\r\n
\r\n \t
Reykskynjarar eru sjálfsögð og ódýr líftrygging, skipta skal um reykskynjara á tíu ára fresti. Og rafhlöður í byrjun desember ár hvert eða oftar ef þörf er á.
\r\n \t
Átt þú handslökkvitæki? Er það í lagi? Hvenær var það síðast yfirfarið?
\r\n \t
Slökkvitæki á að vera á sýnilegum stað, ekki í felum inni í skáp!
\r\n \t
Ofhlöðum ekki fjöltengi og gætum að gömlum og lélegum rafbúnaði.
\r\n \t
Notum ávalt viðurkenndar rafvörur og fjöltengi með slökkvara og gaumljósi.
\r\n \t
Eldvarnateppi skal vera í hverju eldhúsi og á aðgengilegum og sýnilegum stað.
\r\n \t
Gerum flóttaáætlun úr íbúðinni vegna eldsvoða með öllum á heimilinu og æfum hana reglulega. Tvær greiðar flóttaleiðir úr hverri íbúð!
\r\n \t
Gætum varúðar í umgengni við kertaljós og skreytingar, skiljum börn aldrei eftir eftirlitslaus nærri logandi kertum eða eldi.
\r\n \t
Aðgætum íbúðir okkar áður en gengið er til hvílu, eða þær eru yfirgefnar að degi til, hvort nokkurs staðar logi á kerti eða skreytingum.
\r\n \t
Logandi kertaljós séu aldrei höfð í gluggum vegna dragsúgs og lausra gardína.
\r\n \t
Dreifið sem mest raforkunotkun við matseld um jól og áramót. Það kemur í veg fyrir hugsanleg óþægindi vegna mikils álags á dreifikerfi rafmagns.
\r\n \t
Ullar- eða leðurvettlingar á höndum og öryggisgleraugu á öll nef við meðferð flugelda um áramót.
\r\n \t
Munum 112 Neyðarlínuna ef slys, veikindi eða eldsvoða ber að höndum.
\r\n

"innerBlocks": []

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna og slysahættu um hátíðirnar - Skessuhorn